Skip to content  

Port

Gjaldfrjáls garðlönd Skagafjarðar

07.05.2025
Garðlönd sveitarfélagsins á Sauðárkróki, Varmahlíð og Hofsósi (Grafargerði) verða til reiðu á næstu dögum, á sömu staðsetningum og síðast. Nú þegar hefur garðlandið á Nöfum verið unnið og er tilbúið til beðagerðar. Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér pláss í garðlandi á vegum Skagafjarðar sendi póst á kari@skagafjordur.is eða hringi í síma 6593970. Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi.

Alútboð - Iðnaðarhúsnæði við Borgarteig 15

05.05.2025
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í verkið Borgarteigur 15, Sauðárkrókur - Iðnaðarhús 2025 - Alútboð 2025. Um er að ræða 816 m² nýbyggingu iðnaðarhúsnæðis úr límtré- eða stálgrind á lóð núverandi áhaldahúss Skagafjarðar á Borgarteigi 15 á Sauðárkróki.

Verndarsvæði í byggð á Sauðárkróki - Kirkjutorg 1

05.05.2025
Hjá byggingarfulltrúa Skagafjarðar liggja fyrir gögn vegna tilkynntra framkvæmda við Kirkjutorg 1 á Sauðárkróki. Framkvæmdirnar varða breytingar á einangrun og klæðningu hússins að utan og er áætlaður verktími 6 mánuðir. Framkvæmdin er innan verndarsvæðis í byggð sem er norðurhluti gamla bæjarins á Sauðárkróki.

Umhverfisdagar Skagafjarðar

03.05.2025
Umhverfisdagar Skagafjarðar 2025 verða haldnir dagana 5. – 17. maí. Í ár eru 36 ár frá því að umhverfisdagar voru fyrst haldnir í firðinum. Íbúar eru hvattir til að hlúa að umhverfinu og er takmarkið,snyrtilegra og fegurra umhverfi. Mikilvægt er að íbúar, fyrirtæki, býli og félagasamtök taki höndum saman, tíni rusl, komi bílhræjum, vélhræjum og...

Næsthæsti styrkur úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til uppbyggingar við Staðarbjargarvík

02.05.2025
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úthlutaði í vikunni úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2025. Að þessu sinni hlut 28 verkefni styrk úr sjóðnum. Heildarúthlutun er 553,2 milljónir króna og dreifast verkefnin um land allt. Að venju snúa verkefnin að fjölbreyttri uppbyggingu, m.a. á sviði öryggismála, náttúruverndar,...

Skráning í Vinnuskólann stendur yfir

30.04.2025
Við vekjum athygli á því skráningar í Vinnuskóla Skagafjarðar fyrir sumarið 2025 eru í fullum gangi. Vinnuskólinn verður starfandi frá þriðjudeginum 10. júní til föstudagsins 8. ágúst að báðum dögum meðtöldum. Leitast er við að veita öllum 13 til 16 ára unglingum búsettum í Skagafirði aðgang í skólann. Árgangarnir sem í hlut eiga eru fæddir á...

Styrktarhlaup fyrir félagið Einstök börn þann 1. maí nk. á Sauðárkróki

30.04.2025
Hlaupahópurinn 550 Rammvilltar stendur fyrir hinu árlega styrktarhlaupi fyrir félagið Einstök börn þann 1. maí nk. á Sauðárkróki. Upphitun hefst við Sundlaug Sauðárkróks uppúr kl. 13:30 og hlaupið hefst kl. 14:00. Tvær leiðir eru í boði, 3 og 5 km, sem hægt er að stytta eða lengja að vild - hlaupandi, gangandi eða hjólandi. Hreyfibingóspjöld í...

Máltíðir fyrir eldra fólk í dreifbýli

25.04.2025
 Félagsmála – og tómstundanefnd Skagafjarðar samþykkti á fundi sínum 6. mars sl. að hefja reynsluverkefni í samstarfi við Varmahlíðarskóla og Grunnskólann austan Vatna. Samstarfið miðar að því að bjóða eldri borgurum utan Sauðárkróks að sækja um matarþjónustu hjá stuðnings- og stoðþjónustu Skagafjarðar og sækja matarbakka í...

Setning Sæluviku

23.04.2025
Sæluvika, lista- og menningarhátíð í Skagafirði, verður dagana 27. apríl - 3. maí. Setningin verður í Safnahúsinu sunnudaginn 27. apríl kl 13 þar sem veitt verða samfélagsverðlaun Skagafjarðar. Vísnakeppnin verður á sínum stað, tónlistaratriði í boði Tónlistarskóla Skagafjarðar, opnun myndlistarsýningar Sólóns myndlistafélags og kaffi og terta fyrir gesti.