Skip to content  

Port

17. júní í Skagafirði: Uppfærð dagskrá

12.06.2025
Vakin er athygli á því að það er villa í dagskránni sem birtist í Sjónarhorninu í dag. Sundlaugin á Hofsósi er opin til kl. 18:00, en ekki 20:00 og jafnframt er sundlaugin í Varmahlíð opin til 20:00, en ekki 18:00. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.  

Heiti potturinn í sundlauginni á Hofsósi verður lokaður fram til 16. júní vegna viðhalds.

11.06.2025
Vegna viðhaldsvinnu á heita pottinum og vaðlauginni í sundlauginni á Hofsósi eru þau lokuð næstu daga. Gert er ráð fyrir að potturinn og vaðlaugin opni aftur 17. júní næstkomandi. Hitastig í sundlauginni verður hækkað upp í 33°C á meðan lokun stendur. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. 

Sundlaug Sauðárkróks lokuð fimmtudaginn 12. júní vegna viðhaldsvinnu.

11.06.2025
Vegna viðhaldsvinnu og þrifa verður Sundlaug Sauðárkróks lokuð fimmtudaginn 12. júní. Gert er ráð fyrir að sundlaugin opni aftur á föstudagsmorgun. 

Skagafjörður boðar til fundar vegna nýrra lóðaleigusamninga á Nöfum á Sauðárkróki

10.06.2025
Lóðaleigusamningar á Nöfum runnu flestir út síðastliðin áramót. Eftir áramót var farið í þá vinnu að afla upplýsinga um áform þeirra sem höfðu haft leigusamning varðandi framhaldið, það er, hvort fólk ætlaði að nýta sér forleiguákvæði fyrri samnings eða ekki. Flestir aðilar lýstu yfir þeim áformum að ætla að framlengja leigusamning sinn og hefur...

Skagfirskar leiguíbúðir hses. auglýsir eftir umsóknum um úthlutun íbúðar til leigu á Sauðárkróki í Almenna íbúðakerfinu

10.06.2025
Um er að ræða 95,7 m2 íbúð með þremur svefnherbergjum á efri hæð Laugatúns 21. Um byggingu og útleigu íbúðanna gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016. Stjórn Skagfirskra leiguíbúða hses. úthlutar íbúðunum samkvæmt forgangsröðun Skagfirskra leiguíbúða hses. eftir að farið hefur verið yfir allar umsóknir. Tekið skal fram að...

Nýr samningur um sjúkraflutninga undirritaður

05.06.2025
Fyrr í dag rituðu Jón Helgi Björnsson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri Skagafjarðar undir nýjan samning um þjónustu sjúkraflutninga. Samningurinn sem gildir til næstu 5 ára, nær til sjúkraflutninga í Skagafirði, utan Fljóta sem njóta þjónustu frá Fjallabyggð. Brunavarnir Skagafjarðar munu sjá um...

Lausar lóðir til leigu á Nöfum á Sauðárkróki

04.06.2025
Byggðarráð ákvað á 148. fundi sínum þann 27. maí sl. að auglýsa til leigu þær lóðir á Nöfum sem hefur verið skilað inn. Lóðirnar sem um ræðir eru lóðir númer 13 (L143974), 31 (L143969), 36 (L218115) og 38 (L143963) og eru lausar strax. Ræktunarlandið er selt á leigu til ræktunar og slægna og til sauðfjárbeitar og beitar fyrir allt að 5...

Sundlaugin í Varmahlíð opnar í dag

04.06.2025
Vakin er athygli á því að sundlaugin í Varmahlíð opnar í dag miðvikudaginn 4. júní kl. 12:00, eftir tímabundna lokun vegna viðhaldsvinnu. Laugin hefur nú fengið nauðsynlegt viðhald og er tilbúin að taka á móti gestum á ný fyrir sumarið!  Sumaropnunin er hafin og er eftirfarandi: Mánudaga - föstudaga kl. 12:00 - 21:00 Laugardaga -...

Vinnuskóli Skagafjarðar hefst 10. júní nk.

03.06.2025
Vinnuskóli Skagafjarðar hefur störf þriðjudaginn 10. júní. Líkt og í fyrra verður bækistöð vinnuskólans í vallarhúsinu á íþróttavellinum á Sauðárkróki. Starfsmenn vinnuskóla í ár verða þeir Atli Steinn Stefánsson og Atli Dagur Stefánsson. Auk þeirra verða starfsmenn íþróttavallar börnunum innan handar. Allar helstu upplýsingar um skólann má...