Skip to content  

Port

Truflun á heitu vatni í Iðutúni

15.02.2022
Fréttir
Í dag verður gert við bilun í hitaveitu í Iðutúni á Sauðárkróki. Það mun hafa í för með sér truflanir á rennsli heita vatnsins. Vinna hefst kl. 13 og stendur fram eftir degi. Íbúar eru beðnir velvirðingar á þessu.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sameiningarkosningar

09.02.2022
Fréttir
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kosningar um sameiningu Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps stendur yfir hjá sýslumönnum um land allt og hjá sendiráðum erlendis. Íbúar sveitarfélaganna, sem eiga kosningarétt í kosningunum samkvæmt II. kafla laga um kosningar til sveitarstjórna og eiga þess ekki kost að mæta á kjörstað, geta því greitt...

Sveitarstjórnarfundur miðvikudaginn 9. febrúar 2022

07.02.2022
Fréttir
Sveitarstjórnarfundur verður haldinn í Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar að Sæmundargötu 7, miðvikudaginn 9. febrúar og hefst hann kl. 16;15

Íbúafundir um sameiningarmál í kvöld og annað kvöld. Breytt fyrirkomulag.

07.02.2022
Fréttir
Íbúafundir um sameiningarmál Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps fara fram í kvöld og annað kvöld. Á fundunum verður kynning á framtíðarsýn samstarfsnefndar og forsendum fyrir sameiningartillögu hennar. Í kjölfar kynningarinnar gefst íbúum færi á að ræða niðurstöðurnar og koma sjónarmiðum sínum á framfæri varðandi þær og sameiningu...

Opnanir í kjölfar óveðurs

07.02.2022
Fréttir
Íþróttamiðstöðin i Varmahlíð hefur verið opnuð í dag í kjölfar óveðurs og Sundlaugin á Hofsósi opnar í dag kl. 17:00. Þá hefur Héraðsbókasafn Skagfirðinga á Sauðárkróki einnig verið opnað. Ekki raskaðist opnun á Sundlaug Sauðárkróks vegna veðurs og eins og áður var tilkynnt er skólahald í grunn-, leik- og tónlistarskóla á Sauðárkróki með...

Skólahald á Sauðárkróki verður með hefðbundnum hætti í dag

07.02.2022
Fréttir
Skólahald í Árskóla og Ársölum á Sauðárkróki verður með hefðbundnum hætti í dag, mánudag 7. febrúar. Þó er ítrekað að veðuraðstæður eru misjafnar eftir búsetu nemenda og eru foreldrar og forráðamenn eindregið hvattir til að meta aðstæður og geta tekið ákvörðun um að senda börn sín ekki í skólann ef veður er slæmt. Í þeim tilvikum eru þeir...

Tilkynning um lokanir vegna veðurútlits

06.02.2022
Fréttir
Allt skólahald í leik- og grunnskólum á Hólum, Hofsósi og í Varmahlíð fellur niður á morgun, mánudaginn 7. febrúar, vegna veðurútlits. Þá verða sundlaugarnar á Hosósi og í Varmahlíð jafnframt lokaðar fram eftir degi. Skólahald á Sauðárkróki verður metið snemma í fyrramálið og skilaboð send foreldrum ef ástæða þykir til.

Lokun íþróttamannvirkja vegna slæmrar veðurspár

06.02.2022
Fréttir
Vegna slæmrar veðurspár hefur verið tekin sú ákvörðun að Íþróttamiðstöðin í Varmahlíð og sundlauagin á Hofsósi verði lokuð í fyrramálið, mánudaginn 7. febrúar, en staðan endurmetin þegar líður að hádegi. Tilkynnt verður hér á heimasíðunni og á Facebook síðu sveitarfélagsins þegar hægt verður að opna.

Auglýsing vegna kjörskrár

03.02.2022
Fréttir
Kjörskrá Sveitarfélagsins Skagafjarðar, sem staðfest var á fundi byggðarráðs 2. febrúar sl. vegna kosningar til sameiningar Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 19. febrúar 2022, liggur frammi í Ráðhúsinu á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 21, alla virka daga frá kl. 10:00 - 12:00 og 12:30 - 15:00 frá og með föstudeginum 4. febrúar til...