Skip to content  

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sameiningarkosningar

09.02.2022

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kosningar um sameiningu Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps stendur yfir hjá sýslumönnum um land allt og hjá sendiráðum erlendis. Íbúar sveitarfélaganna, sem eiga kosningarétt í kosningunum samkvæmt II. kafla laga um kosningar til sveitarstjórna og eiga þess ekki kost að mæta á kjörstað, geta því greitt atkvæði sitt hjá sýslumönnum og í sendiráðum á opnunartíma fram að kjördegi þann 19. febrúar nk.

Afgreiðslutími Sýsluskrifstofunnar á Sauðárkróki er alla virka daga frá kl. 09:00 - 15:00.