Kjörstaðir við kosningar 19. febrúar 2022
02.02.2022
Fréttir
Samþykkt var á fundi Sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 12. janúar sl. að kjörstaðir í Sveitarfélaginu Skagafirði vegna kosninga um sameiningu Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps laugardaginn 19. febrúar verði eftirtaldir:
Skagasel, Bóknámshús FNV, Varmahlíðarskóli, Félagsheimilið Árgarður, Grunnskólinn á Hólum, Félagsheimilið Höfðaborg og Félagsheimilið Ketilás.