Garðyrkjudeild Sveitarfélagsins Skagafjarðar leitar eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, frumkvæði, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi.
Nú er framundan vetrarfrí í grunnskólum Skagafjarðar og breytist því opnunartími sundlaugarinnar í Varmahlíð 15. - 17. febrúar næstkomandi.
Á fimmtudaginn er opið kl 16-21, lokað á föstudaginn og opið kl 10-15 laugardaginn 17. febrúar.
Tímabil starfs er frá 1. mars til 26. ágúst með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfið felst m.a. í öryggisgæslu við sjónvarpsskjá og laug, auk eftirlits með öryggiskerfum, afgreiðsla og baðvarsla.
Á degi leikskólans 6. febrúar síðastliðinn hófst forvarnarverkefni gegn einelti í leikskólanum Tröllaborg með skemmtilegri heimsókn þar sem bangsinn Blær kom upp úr kössum bæði á Hofsósi og Hólum. Á kössunum var kort af Íslandi og leikskólinn merktur inn á kortið.
Vegna vinnu við heitavatnslögn þarf að grípa til tímabundinnar lokunar á Sundlaug Sauðárkróks í dag þriðjudaginn 6. febrúar og er laugin því lokuð eins og er. Ef allt gengur vel verður hugsanlega opnað aftur um kvöldmatarleytið í dag. Upplýsingar um opnunina verða birtar á facebook síðu sveitarfélagsins.
Sveitarfélagið Skagafjörður hefur tekið ákvörðun um að bleikjueldisstöð Öggurs ehf að Kjarvalsstöðum í Hjaltadal sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif sbr. viðmið í 2. viðauka við lög nr. 106/2000. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Á miðvikudagskvöld var áttundi og síðasti þáttur Atvinnupúlsins í Skagafirði á dagskrá N4 sjónvarps. Í þættinum er komið víða við, eins og í fyrri þáttum og er meðal annars fjallað um verslun í Skagafirði, fræðsluþjónustu sveitarfélagsins og sútunarverksmiðja heimsótt. Hægt að nálgast hlekk til að horfa á þáttinn í fréttinni.
Þann 23. janúar síðastliðinn samþykkti sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar að leggja fram til kynningar drög að breytingum á aðalskipulagi Skagafjarðar 2009-2021.
Um er að ræða vinnslutillögu í fimm liðum. Valkosti á legu Blöndulínu 3, Sauðárkrókslínu, áframhaldandi frestun á virkjanakosti í Skagafirði, fella út urðunarsvæði við Brimnes, nýtt tengivirki og lega jarðstrengs á Sauðárkróki og ný efnistökusvæði vegna framkvæmda.