Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar leitar eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, frumkvæði, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi.
Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar leitar eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.
Sundlaug Sauðárkróks verður lokuð í dag, þriðjudaginn 13. febrúar, milli kl. 13-17 vegna yfirstandandi framkvæmda.
Jafnframt verður laugin lokuð miðvikudag til föstudags 14.-16. febrúar milli kl. 9-17.
Á síðasta fundi umhverfis- og samgöngunefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem haldinn var þann 2. febrúar síðastliðinn var m.a. kynnt skýrsla sem nefnd á vegum Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins tók saman um forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands.