Sæluvika Skagfirðinga hefst á sunnudaginn
27.04.2018
Fréttir
Sæluvika Skagfirðinga, hin árlega lista- og menningarhátíð, hefst um helgina. Í Sæluviku verður boðið upp á fjölbreytta menningardagskrá víðs vegar um fjörðinn. Sæluvika Skagfirðinga er ein elsta menningarhátíð landsins og nær saga hennar allt aftur til ársins 1874 þegar svonefndar sýslunefndarvikur hófu göngur sínar.