Á fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar þriðjudaginn 14. ágúst var samþykkt samhljóða að ráða Sigfús Inga Sigfússon í starf sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagafjarðar kjörtímabilið 2018-2022.
Laust er til umsóknar starf frístundaleiðbeinanda í Húsi frítímans á Sauðárkróki. Um er að ræða fullt starf og er umsóknarfrestur til og með 26. ágúst.
Laust er til umsóknar 50% vaktavinnustaða í búsetuþjónustu á heimili fyrir fatlað fólk við Kleifatún á Sauðárkróki. Um framtíðarstarf er að ræða og er umsóknarfrestur til og með 23. ágúst.
Umsóknarfrestur um stöðu deildarstjóra í búsetuþjónustu fyrir fatlað fólk á Sauðárkróki hefur verið framlengdur til og með 22. ágúst. Um er að ræða 100% starf framtíðarstarf.
Auglýst er eftir starfsmönnum í Fellstún, heimili fyrir fatlað fólk, í tvær stöður. 82% framtíðarstarf og 23% helgarvinnu í vetur. Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst.
Sveitarfélagið Skagafjörður mun standa fyrir losun rotþróa á næstkomandi vikum. Svæðið sem losunin nær til er frá Svartárdal, Austur og Vesturdal að Sauðárkróki.
Eigendur rotþróa eru vinsamlegast beðnir um að tryggja aðgengi losunarbíls að rotþróm og að þær séu auðfinnanlegar og opnanlegar.
Ef eigendur hafa athugasemdir fram að færa vinsamlegast...