Skip to content  

Port

Skipulagsfulltrúi óskast

18.03.2021
Fréttir
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir að ráða skipulagsfulltrúa til starfa. Leitað er eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn að þróa nýtt starf á traustum grunni. Helstu verkefni eru samkvæmt skipulagslögum og samþykktum sveitarfélagsins hverju sinni á sviði skipulagsmála, samgöngu- og umhverfismála. Starfshlutfall er...

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

18.03.2021
Fréttir
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar hjá 7. bekkjum grunnskólanna í Skagafirði fór fram í bóknámshúsi FNV í gær og er þetta í tuttugasta skiptið sem lokahátíðin er haldin hér í Skagafirði. Keppnin var hátíðleg að vanda en Laufey Leifsdóttir hefur haft umsjón með henni fyrir hönd Sveitarfélagsins Skagafjarðar undanfarin ár í samstarfi við Raddir, sem eru samtök um vandaðan upplestur og framsögn.

Viltu taka þátt í að móta stefnu um samgöngur?

15.03.2021
Fréttir
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra bjóða til rafræns samráðsfundar um stöðu samgöngumála á Norðurlandi vestra þriðjudaginn 16. mars kl. 10:00–12:00. Á fundinum verður fjallað um samgöngumál í landshlutanum, helstu áskoranir og tækifæri og valkosti til framfara. Boðið verður upp á fjölbreytta...

Sveitarstjórnarfundur 17. mars

15.03.2021
Fréttir
Næsti fundur sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar verður haldinn miðvikudaginn 17. mars kl 16:15 að Sæmundargötu 7

Leikskólinn Ársalir opnar eftir hádegi í dag

11.03.2021
Fréttir
Leikskólinn Ársalir verður opnaður kl. 13:00 í dag. Þótt veðrið sé að ganga niður er þó ennþá mikil ófærð í bænum og margar götur ófærar. Af þeim sökum eru þeir foreldrar sem geta vinsamlega beðnir um að hafa börnin sín heima í dag.

Tilkynning um röskun á þjónustu vegna veðurs

11.03.2021
Fréttir
Kannski voru margir farnir að vona að vorið væri rétt handan við hornið eftir veðurblíðuna undanfarið. En þá ákvað vetur konungur heldur betur að minna á sig. Eðli málsins samkvæmt setur veður og færð ýmsa þjónustu sveitarfélagsins úr skorðum en reynt er eftir fremsta megni að láta hlutina ganga eins og hægt er. Allir grunnskólar í héraðinu eru lokaðir í dag. Leikskólinn Birkilundur í Varmahlíð er opinn en lokað er á Hólum og á Hofsósi til kl. 10:00 – þá verður staðan endurmetin. Leikskólinn Ársalir á Sauðárkróki er lokaður en ákveðið hefur verið að meta stöðuna kl. 11:00 og sjá hvort hægt verður að opna þá.

Þrír styrkir til Skagafjarðar úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

10.03.2021
Fréttir
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, gerðu í gær grein fyrir úthlutun fjármuna til uppbyggingu innviða, náttúruverndar og annarra verkefna á ferðamannastöðum árið 2021. Samtals er nú úthlutað 764 milljónum króna úr Landsáætlun um...

Nýsköpunarkeppni nemenda 5. bekkja í Skagafirði

08.03.2021
Fréttir
Nýsköpunarkeppni 5.bekkja í Skagafirði fór fram í síðustu viku. Allir nemendur í 5.bekk í Grunnskólanum austan Vatna, Árskóla og Varmahlíðarskóla fengu fræðslu um nýsköpun ásamt því að hanna og móta hugmyndir að nýjum uppfinningum. Nemendur hönnuðu sína hugmynd frá grunni, sumir einir og aðrir í hópum. Í framhaldi af hugmyndavinnnunni útbjuggu þeir myndband í Flipgrid sem þeir skiluðu svo inn til yfirferðar.

Breytingar á opnunartíma Flokku og Förgu

08.03.2021
Fréttir
Frá og með mánudeginum 8. mars verða opnunartímar sorpmóttökustöðvanna Flokku og Förgu sem hér segir: Opnunartímar Flokku á Sauðárkóki: Mánudaga - föstudaga er opið frá kl. 8 - 17 Laugardaga er lokað Sunnudaga er opið frá kl. 15 - 18 Opnunartímar Förgu í Varmahlíð: Mánudaga, miðvikudaga, föstudaga og laugardaga er opið frá kl. 14 -...