Skip to content  

Tilkynning vegna VetrarTíms reikninga fótboltaiðkenda

22.04.2015

Það geta alltaf orðið mistök og þau leiðu mistök urðu við útgáfu VetrarTím reikninga fyrir fótboltaiðkun að það gleymdist að uppfæra textann. Á reikningunum stendur: fótbolti, sept-des 2014 en á að vera fyrir tímabilið jan-maí 2015.

Innheimta sveitarfélagsins biðst velvirðingar á þessum mistökum. 

Hægt er að skoða reikningana í íbúagáttinni en hana er hægt að opna með rafrænum skilríkjum, bæði síma og korti.