Sumarhátíð fatlaðs fólks heppnaðist vel á Löngumýri
Um 50 manns sóttu sumarhátíð fatlaðs fólks 18 ára og eldra á Norðurlandi vestra sem haldin var á Löngumýri í Skagafirði nýverið. Hátíðin var haldin í annað sinn en hún fór fyrst fram 11. júní í fyrra að frumkvæði Ástu Ólafar Jónsdóttur á Sauðárkróki.
Markmið hátíðarinnar er að efla samveru og þátttöku fatlaðs fólks á svæðinu og skapa vettvang fyrir gleði og tengslamyndun. Gestir komu víða að, meðal annars frá Hvammstanga, Blönduósi og Sauðárkróki, og nutu dagsins í góðu veðri.
Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá þar sem tónlist og bingó voru í fyrirrúmi auk veitinga sem starfsfólk Löngumýrar sá um. Þá var þátttakendum boðið upp á rútuferð með aðgengilegri rútu fyrir hjólastóla og var hátíðin öllum að kostnaðarlausu.
Undirbúningur var í höndum starfsfólks málefna fatlaðs fólks og stuðnings- og stoðþjónustu í samstarfi við starfsfólk Löngumýrar. Skemmtiatriðin voru af ýmsum toga, en m.a. sáu Margeir, fjármálastjóri Skagafjarðar, og Ásta Ólöf Jónsdóttir um að halda uppi söng og stemningu ásamt starfsmanni Iðju á Sauðárkróki og eru þeim öllum færðar bestu þakkir fyrir.
Fjölmörg fyrirtæki og aðilar studdu við hátíðina með vinningum og öðrum framlögum, þar á meðal Myndun, Olís í Varmahlíð, Alda stéttarfélag, Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, N1 á Sauðárkróki, Hard Wok, Snyrtistofan Wanita, Nýprent/Feykir, Hlíðarkaup, Hjá Ernu og sveitarfélagið Skagafjörður.
Hátíðin tókst afar vel og stefnt er að því að halda hana aftur að ári.