Hátíðarhöld og tónlist setja svip á Hofsós í sumar
Óhætt er að segja að Hofsós verði miðpunktur menningar í sumar, en hátíðarhöld og tónlist munu fylla bæinn af lífi á næstu vikum.
Það verður sannkölluð hátíðarstemmning þegar bæjarhátíðin Hofsós heim verður haldin dagana 19.–21. júní. Dansleikirnir verða á sínum stað en í ár mun Eyþór Ingi skemmta gestum og svo verður kúrekaball með Mannamót. Markaðurinn í Höfðaborg verður á sínum stað að ógleymdu súpuröltinu fræga, varðeldi og brekkusöng. Svo er vert að nefna Sushi pop-up, prjónahitting og barnadagskrá svo fáeitt sé nefnt.
-
-
- Dagskráin birtist þegar nær dregur hér.
-
Tónlistarkonan Garmune ætlar að halda tónleika í Dalakaffi sunnudaginn 28. júní. Garmun er á ferðlagi um landið í sumar og ætlar að koma við á Hofsósi til að flytja ljúfa tóna, bæði á spænsku og á ensku.
-
-
- Miðasala fer fram hér.
-
Þann 18. júlí mun síðan tónlistarmaðurinn Mugison halda tónleika við brekkuna við safnasvæðið. Tónleikarnir fara fram kl. 15:00–16:00 og er fólk hvatt til að koma með teppi og koma sér vel fyrir.
-
-
- Miðasala fer fram hér.
-
Að lokum má síðan nefna tónlistarhátíðina Sveitavegir sem fer fram 25. júlí. Þar mun tónlistarfólk úr Skagafirði og að sunnan koma saman og flytja klassíska sveitatónlist í bland við þjóðlög og íslenska sveitatónlist. Hátíðin fer fram í Höfðaborg, en dagskráin hefst kl. 15:00 með upphitun sem er opin öllum. Megindagskráin hefst síðan kl. 20:00 og þar koma meðal annars fram Dulúð, Lára og húsið í Sléttuhlíð, Lævís hestur, Sveitavegir Helga Sæmundar og félaga og Sverrison Hotel.
-
-
- Miðasala fer fram hér.
-
Allir sveitavegir liggja svo sannarlega til Hofsóss í sumar.