Uppfærð framkvæmdatilkynning: Tímabundin lokun sundlaugar á Sauðárkróki
10.06.2026
Í síðustu viku vakti sveitarfélagið athygli á því að vegna viðhalds yrði sundlauginni á Sauðárkróki lokað tímabundið. Unnið er að lagfæringum á sundlaugarbakkanum auk þess sem verið er að klára uppsetningu á hitalögnum í kringum gömlu laugina.
Stefnt var að því að sundlaugin yrði opnuð aftur helgina 13.–14. júní nk. en vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður því miður ekki hægt að opna sundlaugina á Sauðárkróki fyrir komandi helgi. Umfang verksins er meira en lagt var upp með og því tefjast framkvæmdir.
Beðist er afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Sveitarfélagið hvetur íbúa og gesti eindregið til þess að heimsækja sundlaugarnar á Hofsósi, í Varmahlíð og á Sólgörðum meðan á framkvæmdum stendur.