Skip to content  

Bókasafnið lokað frá og með 24. mars

23.03.2020

Frá og með morgundeginum, þriðjudeginum 24. mars, verður Héraðsbókasafn Skagfirðinga lokað til 14. apríl (þriðjudags eftir páska) samkvæmt fyrirmælum yfirvalda.

Í dag verður opið til kl. 18, notið tækifærið og náið ykkur í lesefni fyrir lokun.

Af þessu leiðir að  skiladagar á efni sem á að skila 23. mars -13. apríl verða færðir til 14. apríl. Á þessum tíma reiknast ekki sektir á bækur.