Fara í efni

Bjórhátíðin á Hólum

Bjórhátíðin á Hólum - https://hatid.gresjan.is/is/hatidir/bjorhatid-a-holum/2024/

Einn eftirmiðdag í júní raða bruggmeistarar sér upp í gamla leikfimisal hólaskóla og bjóða gestum að bragða afurðir sínar. Fyrir utan hafa heimamenn reist sölubása og selja mat sem enginn verður svikinn af. Búið er að tjalda yfir borð og bekki þar sem gestir njóta matar síns. Í biskupsgarðinum fer Kútarallið fram.Miði veitir einnig þátttökurétt í kútahlaupi hátíðarinnar. Alvöru íþróttakeppni þar sem kraftur og snerpa, lipurð og tækni skipta mestu máli í æsilegri keppni. Í kútarallinu rúlla keppendur bjórkút eftir merktri braut á sem stystum tíma og nota til þess aðeins fæturna. Hver keppandi má keppa eins oft og hann treystir sér til. Veitt eru verðlaun fyrir fyrsta sæti í karla- og kvennaflokki

Innifalið i miðaverði er glas merkt hátíðinni, happadrættismiði og aðgangur að hátíðarsvæðinu og básum brugghúsanna þar sem hægt er að fá áfyllingu á glasið á meðan á hátíðinni stendur. Miðar á hátíðina eru seldir við innganginn og á Tix.is. - https://tix.is/is/event/17375/bjorhati-in-a-holum-2024/

Gestir eru hvattir til að ganga um svæðið, spjalla við bruggara og smakka afurðir þeirra. Síðan getur hver gestur notað sérstakan QR kóða sem prentaður er á aðgöngumiðann til að kjósa uppáhaldsbjórinn sinn. Í lok hátíðarinnar eru úrslitin kynnt og veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Margir glæsilegir vinningar eru í boði í happadrætti bjórhátíðarinna. Vafalaust er að eftirsóttasti vinningurinn er bruggdagur á Hólum þar sem vinningshafanum er boðið að heimsækja brugghúsi Bjórseturs Íslands á bruggdegi og aðstoða við framleiðsluna.