Fara í efni

Stóri plokk dagurinn á sunnudaginn

26.04.2024

Stóri plokkdagurinn verður sunnudaginn 28. apríl en hann var fyrst haldinn árið 2018. Um er að ræða flott samfélagsverkefni þar sem allir geta látið gott af sér leiða með því að fegra og hreinsa umhverfið í kringum sig. Rótarý hreyfingin á Íslandi hefur tekið Stóra plokkdaginn upp á sína arma og heldur utan um skipulagningu dagsins um allt land. Hægt verður að fara með rusl sem safnast á Stóra plokkdeginum í Flokku íbúum að kostnaðarlausu ef skilað er í glærum pokum.
Skagafjörður hvetur alla íbúa, félagasamtök og fyrirtæki til að taka þátt í Stóra plokkdeginu og láta gott af sér leiða í þágu samfélagsins.