Flýtileiðir
Fréttir
17.05.2024
Skólasókn í öðru skólahverfi innan Skagafjarðar skólaárið 2024-25
Vakin er athygli á því að beiðni um skólasókn í öðru skólahverfi fyrir skólaárið 2024-25 skal hafa borist sviðsstjóra fjölskyldusviðs á netfangið bryndislilja@skagafjordur.is fyrir 10. júní nk. Beiðni foreldra um flutning skal vera skrifleg og rökstudd.
Í Skagafirði eins og í öðrum sveitarfélögum eru ákveðin skólahverfi. Börn sækja skóla innan...
17.05.2024
Viðgerðir á gervigrasvellinum á Sauðárkróki hefjast á morgun
Viðgerðir á gervigrasvellinum á Sauðárkróki hefjast á morgun. Í kjölfar leysinga þann 20. apríl sl. urðu skemmdir á um 1.500 fermetra svæði á vellinum, en völlurinn sjálfur er rúmlega 8.000 fermetrar. Byggðaráð Skagafjarðar samþykkti á fundi sínum á miðvikudaginn að fara í viðgerðir á vellinum að fjárhæð 11 milljónir króna og í kjölfarið fer fram...
17.05.2024
Ársreikningur 2023 samþykkur í sveitarstjórn
Ársreikningur Skagafjarðar fyrir árið 2023 var samþykktur samhljóða við síðari umræðu í sveitarstjórn sl. miðvikudag. Niðurstaðan er ánægjuleg, rekstrarafgangur samstæðunnar var samtals að upphæð 123 milljónir króna, afborganir langtímalána voru hærri en taka nýrra lána annað árið í röð og skuldahlutfall og skuldaviðmið lækkuðu einnig annað árið í...
15.05.2024
Baldur Hrafn Björnsson ráðinn sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Sveitarstjórn Skagafjarðar hefur ákveðið að ráða Baldur Hrafn Björnsson í starf sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs en staðan var auglýst öðru sinni í apríl sl. Alls bárust fjórar umsóknir um stöðuna þar af drógu tveir umsækjendur umsókn sína til baka.
Baldur er með MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands og BSSc gráðu í...
14.05.2024
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna forsetakjörs 1. júní 2024
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs þann 1. júní 2024 er hafin.
Greiða má atkvæði utan kjörfundar á kjörstöðum innan umdæmisins sem hér segir:
• Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 09:00 - 15:00.
• Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 09:00 - 15:00.
• Hvammstanga, ráðhúsi Húnaþings vestra að Hvammstangabraut 5, Hvammstanga, mán - fim kl. 09:00 - 16:00 og fös kl. 09:00 - 12:00.
• Skagaströnd, stjórnsýsluhúsi að Túnbraut 1-3, Skagaströnd, virka daga kl. 10:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00.
Fimmtudagana 23. maí og 30. maí nk. verður opið til kl. 18:00 á skrifstofum sýslumanns að Hnjúkabyggð 33, Blönduósi og Suðurgötu 1, Sauðárkróki. Á kjördag verður opið á báðum skrifstofum milli kl. 11:00 – 15:00.
13.05.2024
Næsti fundur sveitarstjórnar verður haldinn miðvikudaginn 15. maí 2024
Næsti fundur sveitarstjórnar verður haldinn miðvikudaginn 15. maí 2024 að Sæmundargötu 7 og hefst hann kl. 16:15.
Dagskrá:
Fundargerðir til staðfestingar
1.
2404043F - Byggðarráð Skagafjarðar - 92
1.1
2404052 - Samtal við eigendur Sjávarborgar
1.2
2403205 - Beiðni um tilnefningu...
13.05.2024
Sundlaugin í Varmahlíð opin eftir viðhald
Sundlaugin í Varmahlíð er nú aftur opin eftir viðhald sem fór fram síðustu daga. Sundlaugin er opin sem hér segir:Mánudaga - fimmtudaga kl. 08 - 21Föstudaga kl. 08 - 14Laugardaga og sunnudaga kl. 10 – 16
10.05.2024
Skráning í Vinnuskólann stendur yfir
Við vekjum athygli á því skráningar í Vinnuskóla Skagafjarðar fyrir sumarið 2024 eru í fullum gangi. Vinnuskólinn verður starfandi frá mánudeginum 3. júní til föstudagsins 9. ágúst að báðum dögum meðtöldum.
Leitast er við að veita öllum 13 til 16 ára unglingum búsettum í Skagafirði aðgang í skólann. Árgangarnir sem í hlut eiga...
10.05.2024
Auglýsing vegna kjörskrár
Kjörskrá Skagafjarðar, vegna forsetakosninganna þann 1. júní nk. liggur frammi í Ráðhúsinu á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 21, alla virka daga frá kl. 10:00 til 12:00 og 12:30 -15:00 frá og með föstudeginum 10. maí til kjördags.
Upplýsingar um hvar þú ert á kjörskrá og hvaða kjördeild þú tilheyrir er einnig að finna á upplýsingaveitu Þjóðskrár...
08.05.2024
Opnunartímar sundlauga uppstigningardag 9. maí
Sundlaugar Skagafjarðar verða opnar samkvæmt hefðbundum helgaropnunartíma á uppstigningardag, 9. maí að undanskilinni sundlauginni í Varmahlíð sem er lokuð um þessar mundir vegna viðhaldsvinnu.
Opnunartímar verða eftirfarandi:
Sundlaug Sauðárkróks 10-16Sundlaugin á Hofsósi 11-16Sundlaugin Varmahlíð - LOKAÐ