Fara í efni

Tindastóll - FH Lengjubikar kvenna kl 15

Laugardaginn 6. mars kl. 15:00 tekur Tindastóll á móti FH í Lengjubikar kvenna.
 
Svæðinu verður skipt niður í þrjú hólf fyrir áhorfendur og við innganginn þarf að skrá niður nafn og símanúmer.
Hólf 1: Stúka - 50 manns
Hólf 2: Vinstra megin við varamannaskýli aðkomuliðs - 25 manns
Hólf 3: Hægra megin við varamannaskýli heimaliðs - 25 manns
Aðkoma að Grænuklauf er ofan af Nöfunum
Grímuskylda er á leiknum!
Börn fædd 2005 eða síðar eru undanskilin fjöldatakmörkun, nálægðarmörkum og grímunotkun
https://www.covid.is/kynningarefni
 
15 mínútum eftir að leik lýkur fer verðlaunaafhending Lengjudeildarinnar fram og mun fulltrúi KSÍ koma og afhenda Lengjudeildarmeisturum 2020 bikarinn. Í kjölfarið verður lítil flugeldasýning.
 
Við hvetjum fólk til að koma og fagna með Tindastólsstelpunum en mikilvægt er að muna sóttvarnarreglurnar
 
ÁFRAM TINDASTÓLL