Fara í efni

Opinn dagur og uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum

Fögnum tímamótum hjá Fornverkaskólanum á Tyrfingsstöðum í Skagafirði!

20 ára afmæli Fornverkaskólans og afhjúpun viðurkenningarskjaldar vegna Evrópsku minjaverndarverðlaunanna / Europa Nostra verðlaunanna 2026.

Gestum er boðið að taka þátt í að tyrfa yfir hús og reka smiðshöggið á verkið.

Viðburðurinn er öllum opinn hvort sem fólk vill leggja hönd á plóg, fræðast um torfhúsaarfinn eða einfaldlega njóta dagsins með okkur.

Léttar veitingar og lifandi tónlist.

Verið hjartanlega velkomin!