Fara í efni

Fjölskyldufjör í Glaumbæ kl 14

Fjölskyldufjör í Glaumbæ!

Skemmtileg dagskrá verður fyrir börn og aðstandendur þeirra í vetrarfríinu 27. febrúar 2020, frá kl. 14 - 16. Fjölskyldur eru hvattar til að koma á safnið og hafa gaman saman. Aðgangur er ókeypis fyrir fullorðna í fylgd með börnum.

Þuríður Þorbergsdóttir í Glaumbæ verður með sögustund í gamla bænum, farið verður í ratleik um safnasvæðið og boðið upp á völuspá.

Rjúkandi heitt súkkulaði og pönnukaka í Áskaffi á 500 kr.

Verið hjartanlega velkomin í vetrarfríinu!