Fara í efni

Gvendardagur á Hólum

Gvendardagur, dagur Guðmundar góða verður haldinn hátíðlegur í Auðunarstofu á Hólum í Hjaltadal sunnudaginn 24. mars kl. 17:00.
Margaret Cormack flytur erindi sem hún nefnir:
14. aldar sögur um Guðmund góða.
Fyrirlesturinn er fluttur á íslensku en Margaret starfar á Árnastofnun og hefur fengist við rannsóknir á trú á dýrlingum á Íslandi og örnefnum tengdum kirkjum og dýrlingum.
Kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Aðgangur ókeypis