Fara í efni

ÁHRIF BYGGÐASÖGURITUNAR

ÁHRIF BYGGÐASÖGURITUNAR

Málþing föstudaginn 30. september

kl. 10:00 – 18:00 að Hólum í Hjaltadal

Fjallað verður um ritun byggðasögu frá ýmsum hliðum í tilefni

af því að lokið er útgáfu Byggðasögu Skagafjarðar.

Hver eru áhrif slíks verks á byggðaþróun, ferðaþjónustu,

minjavörslu, ímyndarsköpun og sagnfræði?

D A G S K R Á

10:00–10:10 Setning og ávarp Hólmfríðar Sveinsdóttur, rektors Háskólans á Hólum.

Skipulag og ferðaþjónusta

10:10–10:35 „Hér er býli um bæ frá byggð til borgar“. Sigríður Kristjánsdóttir,

deildarforseti Skipulags- og hönnunardeildar Landbúnaðarháskóla Íslands.

10:35–11:00 Sínum augum lítur hver á silfrið: Búsetuskilyrði og blæbrigði þeirra í hugum

íbúanna sem grundvöllur að mismunandi ímynd byggðarlaga hérlendis.

Vífill Karlsson, dósent við Háskólann á Akureyri, prófessor við Háskólann

á Bifröst, ráðgjafi hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi.

11:00–11:25 „Úr fórum fortíðar til ferðaþjónustu framtíðar“. Ingibjörg Sigurðardóttir,

deildarstjóri Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum.

11:25–11:40 Baslað við búskap: Húsmennska og heimilishald í gamla sveitasamfélaginu.

Vilhelm Vilhelmsson, forstöðumaður Rannsóknarseturs

Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra.

H Á D E G I S H L É

Minjavarsla/menningararfur og ímynd

13:00–13:25 Gildi byggðasöguritunar fyrir minjavörsluna. Guðmundur Sigurðsson,

minjavörður Norðurlands vestra.

13:25–13:50 Byggðasaga, ofan jarðar og neðan. Guðný Zoëga, lektor við

Ferðamáladeild Háskólans á Hólum.

14:15–14:40 Um kristnihald og landnámsjarðir í Dölum, Skagafirði og Eyjafirði.

Árni Daníel Júlíusson, rannsóknarsérfræðingur við Háskóla Íslands.

14:40–15:05 „Skiptir ímynd byggða máli?“. Sigríður Þorgrímsdóttir, sérfræðingur á

þróunarsviði Byggðastofnunar.

15:05–15:30 Hvers virði er ein Byggðasaga. Unnar Rafn Ingvarsson, fagstjóri

á Þjóðskjalasafni Íslands.

M I Ð D A G S K A F F I

Hver eru grunngöngin? Hvernig geymum við þau og hvernig getum við notað þau?

16:00–16:20 Vinnulag við byggðasöguritun. Hjalti Pálsson, ritstjóri

Byggðasögu Skagafjarðar.

16:20–16:40 Byggðasaga 2,0. Sólborg Una Pálsdóttir, forstöðumaður

Héraðsskjalasafns Skagfirðinga.

16:40–17:00 Byggðarannsóknir – óplægður akur. Anna Guðrún Edvardsdóttir,

rannsóknastjóri Háskólans á Hólum.

17:00–17:40 Umræður.

17:40 Ávarp sveitarstjóra, Sigfúsar Inga Sigfússonar.

17:50 Málþingi slitið.