Fara í efni

Blöndulína 3 - Fundur Landsnets með landeigendum

Þann 3. desember frá kl: 15.30 – 17.30 verður haldinn fundur fyrir landeigendur á línuleiðinni Akureyri – Blanda vegna fyrirhugaðrar lagningu Blöndulínu 3.  Fundurinn verður með fjarfundafyrirkomulagi á Teams. Landsnet hefur sent fundarboð á þá landeigendur sem þegar hafa mætt á fyrri landeigendafundi og fyrirtækið hefur netfang hjá.

Ef landeigendur sem ekki hafa mætt á fyrri fundi óska eftir að vera með á fundinum þá geta þeir skráð sig með því að senda tölvupóst á elins@landsnet.is og fá þá sendan link ásamt nánari upplýsingum.