Sveitarstjóri

Sigfús Ingi SigfússonSveitarstjóri Skagafjarðar er Sigfús Ingi Sigfússon.

Sigfús Ingi tók við starfi sveitarstjóra í Sveitarfélaginu Skagafirði eftir sveitarstjórnarkosningarnar árið 2018 og var Sigfús endurráðinn eftir sveitarstjórnarkosningar 2022 við sameiningu Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps í nýtt sameinað sveitarfélag, Skagafjörð.

Sigfús er fæddur og uppalinn í Skagafirði. Hann er með BA-gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands og MBA-gráðu frá University of Stirling í Skotlandi, auk þess að hafa stundað nám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Sigfús hefur starfað hjá fyrirtækum á einkamarkaði og einnig í opinberri stjórnsýslu á vettvangi bæði ráðuneyta og sveitarfélags.

Sigfús er kvæntur Laufeyju Leifsdóttur ritstjóra hjá Forlaginu og eiga þau þrjú börn, Leif Benedikt, Steinar Óla og Sigurbjörgu Ingu.

Netfang: sigfus@skagafjordur.is

Sími: 455-6000