Fara í efni

Sumarstörf í sundlaugum í Skagafirði

04.04.2016

Sundlaugar Sauðárkróks, Varmahlíðar, Hofsóss og Sólgörðum

 

Tímabil: Lok maí til loka ágúst ( Gæti verið mismunandi tímabil)

Lýsing á starfinu: Starfið felst m.a. í öryggisgæslu við sjónvarpsskjá og laug, auk eftirlits með öryggiskerfum, afgreiðsla og baðvarsla.

Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri, hafa ríka þjónustulund og samstarfsvilja. Fyrri reynsla og björgunarsundpróf er kostur.

Vinnutími: Vaktavinna

Starfsheiti: Sundlaugavörður I

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Yfirmaður: Þorvaldur Gröndal, forstöðumaður frístunda- og íþróttamála

 

Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl 2016

 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorvaldur Gröndal í síma 660-4639 eða valdi@skagafjordur.is. Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf), eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.