5/28/2010
Í lok kjörtímabils
Við sem þetta skrifum höfum í fjögur til átta ár setið í sveitarstjórn og unnið að framþróun samfélags okkar og velferð íbúanna. Framsóknarmenn unnu mikilvægan sigur í kosningunum 2006 og gerði sá sigur okkur kleift að leiða framþróun samfélagsins þetta kjörtímabil, sem nú er að ljúka.
 meira

1/12/2009
Málefni Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki
Síðustu daga hafa hlutirnir gerst hratt og mikil óvissa skapast um hvernig staða Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki (HS) verður í framtíðinni. Ráðuneyti heilbrigðismála kynnti þær breytingar að sameina ætti heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni innan hvers heilbrigðisumdæmis.
 meira

10/16/2008
BRETTUM UPP ERMAR !
Það gjörningaveður sem nú gengur yfir íslenskt efnahagslíf kemur á einn eða annan hátt við okkur öll. Ljóst er að einstaklingar og fyrirtæki um allt land verða fyrir einhverjum skakkaföllum. Það á líka við einstaklinga og fyrirtæki á landsbyggðinni stór og smá.
 meira

5/6/2008
KOLTREFJAVERKSMIÐJA
Mikilvægt skref í því að auka enn fjölbreytni atvinnulífs í Skagafirði var stigið er stofnað var félag til undirbúnings koltrefjaverksmiðju á Sauðárkróki. Eins og flestir Skagfirðingar vita þá eru um fimm ár síðan Þorsteinn Broddason vakti athygli manna á þessum möguleika hér í Skagafirði.
 meira

7/10/2007
Sveitarfélagið Skagafjörður - 1.árs afmæli meirihlutans
Um þessar mundir er rúmt ár liðið frá því að meirihluti Framsóknarflokks og Samfylkingar tók við ábyrgð og stjórnun Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Það er mat meirihlutans að vel hafi tekist til við að koma mörgum afar góðum málum af stað, klára mörg þeirra og síðast en ekki síst ljúka við brýn verkefni sem biðu úrlausnar.
 meira

4/12/2007
Fréttatilkynning
Um árabil hefur verið ágreiningur um hvernig fara skuli með hugmyndir um virkjanir og aðra nýtingu virkjanasvæða í Aðalskipulagi fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð. Frá því að meirihluti Framsóknarflokks og Samfylkingar tók við stjórn sveitarfélagsins hefur verið unnið að tillögu er sátt gæti náðst um.
 meira

3/8/2007
Um þriggja ára áætlun
Á fundi sveitarstjórnar 22. febrúar sl. var samþykkt þriggja ára áætlun. Með henni fylgdi greinargerð um helstu mál sem unnið verður að á þessu þriggja ára tímabili. Ljóst er að þær miklu framkvæmdir sem meirihluti sveitarstjórnar ætlar sér að standa fyrir koma til með að hafa áhrif á áætlunina.
 meira

12/22/2006
Yfirlýsing frá meirihluta sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna umræðu um skólamál
Fjárhagsáætlun felur í sér markmiðssetningu og henni til grundvallar liggja ákveðnar tillögur eða hugmyndir. Engar ákvarðanir hafa verið teknar varðandi einstakar tillögur aðrar en tilgreindar eru sérstaklega í áætluninni. Meirihluti sveitarstjórnar harmar því þá villandi umræðu sem verið hefur um skólamál í sveitarfélaginu.
 meira

12/11/2006
Til hamingju með Háskólann á Hólum
Sá gleðilegi atburður varð á Alþingi íslendinga nú um helgina að ný lög voru samþykkt um Hólaskóla, sem gera hann að fullgildum háskóla. Háskólinn á Hólum byggir eins og allir vita á gömlum merg og er það við hæfi að þessi lög skuli samþykkt í lok ársins þar sem þess er minnst að 900 ár eru liðin frá því að skólahald hófst á Hólum.
 meira

10/3/2006
Félagsheimilið Miðgarður – vettvangur menningarstarfssemi í Skagafirði
Undanfarnar vikur hefur mikið verið rætt um félagsheimilið Miðgarð og þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru, á forsendum samnings við menntamálaráðuneytið. Hér á eftir verður leitast við að gera grein fyrir innihaldi samningsins, verklagi við hönnun, undirbúning útboðsgagna og þeirri stöðu sem sveitarstjórn stóð frammi fyrir við opnun tilboða í júlí.
 meira
Gunnar Bragi Sveinsson
Gunnar Bragi Sveinsson

Fæddur 9. júní 1968 á Sauðárkróki. 

Kvæntur Elvu Björk Guðmundsdóttur

Börn:
Arnar Þór, Frímann Viktor, Sveinn Rúnar, Ingi Sigþór og Róbert Smári.

Nám:
Stúdentspróf frá FNV 1989.  Atvinnulífsfélagsfræði við Háskóla Íslands árið 1995.

Helstu störf:
Verslunarstjóri Ábæjar. 1989-1990, Verkamaður og gæslumaður í Steinullarverksmiðjunni 1989-1991, Verslunarstjóri Ábæjar 1991- 1995, Skeljungur hf. sölu- og verslunarstjóri 1996-1997, Aðstoðarmaður félagsmálaráðherra 1997 - 1999, markaðsráðgjafi hjá Íslensku auglýsingastofunni 1999, verslunarsvið Kaupfélags Skagfirðinga 2000-2002, framkvæmdastjóri Ábæjar . 2002 – 2003, framkvæmdastjóri Ábæjar-veitinga ehf. frá 2004.
Auk þess hefur Gunnar starfað sem ritstjóri fréttablaðsins Einherja, þjónn, verkamaður, sendibílstjóri ofl.

Félagsstörf:
Gunnar tók mikinn þátt í félagsstarfi í skóla. Sat í stjórn Knattspyrnudeildar Tindastóls og Skíðadeildar Tindastóls. Starfaði með Leikfélagi Sauðárkróks ofl. Gekk í Félag ungra framsóknarmanna í Skagafirði 14 ára gamall og hefur starfað síðan í Framsóknarflokknum. Var formaður Félags ungra Framsóknarmanna. Varaformaður Kjördæmissambands Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra. Var í kjöri í  bæjarstjórnarkosningum árið 1990 á Sauðárkróki. Var varamaður í bæjarstjórn og átti sæti í félagsmálaráði Sauðárkróks og fleiri nefndum. 2002 varð Gunnar oddviti framsóknarmanna í Sveitarstjórn Skagafjarðar og situr nú í Byggðarráði og Skipulags og byggingarnefnd  Gunnar situr nú í stjórn Húsnæðissamvinnufélags Skagafjarðar var stjórnarmaður í Hússjóði Öryrkjabandalags Íslands 1998-2000 Formaður stjórnar Varasjóðs Viðbótarlána 1998-2002 og varaformaður stjórnar Varasjóðs Húsnæðismála frá 2002. Gunnar hefur gengt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Framsóknarflokkinn og situr m.a. í miðstjórn flokksins og ýmsum nefndum á vegum hans.

gunnarbragi@fjolnet.is;