15. ágúst 2010
Tímamót - Sögusetrið opnar fyrir gestum og gangandiSögusetur íslenska hestsins á Hólum í Hjaltadal flutti í nýuppgert húsnæði og opnaði fyrsta áfanga af þremur í yfirlitssýningunni, Íslenski hesturinn og myndbands- og ljósmyndasýninguna, Hesturinn í náttúru Íslands, laugardaginn 14.
11. ágúst 2010
Lokaspretturinn - innlitNú er sigið á seinnihlutann og markmiði senn náð. Sögusetrið opnar fyrir gesti næstkomandi laugardag klukkan 18:00. Ljósmyndari (Helgi Thoroddsen) laumaði sér inn og náði nokkrum einstökum myndum af einbeittu fólki við störf og laumaði þeim á netið.
28. júní 2010
Arna Björg í útvarpinuArna Björg forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins var í viðtali við Rás 2 í dag http://dagskra.ruv.is/ras2/4525977/2010/06/28/ Endurgerð á gamla hesthúsinu gengur vel.
4. júní 2010
Hestar og menn - ljósmyndasýningSöguseturs íslenska hestsins og Héraðsskjalasafns Skagfirðinga munu opna ljósmyndasýninguna Hestar og menn á Hótel Varmahlíð, sunnudaginn 6.
28. maí 2010
Sex starfsmenn og fjöldi iðnaðarmannaSögusetur íslenska hestsins hlaut stuðning til að ráða í fjögur sumarstörf 18 ára og eldri og eitt sumarstarf 18 ára og yngri í vinnumarkaðsaðgerðum Félags- og tryggingarmálaráðuneytisins og Vinnumálastofununar.
27. maí 2010
Listaháskólinn og SögusetriðHelgi Thoroddsen, nemandi við Listaháskóla Íslands dvaldi á Sögusetrinu í dag. Helgi mun ásamt nemendum í Listaháskólanum og nokkrum ljósmyndurum setja upp ljósmyndasýningu og Videóverk um hestinn í náttúru Íslands á efri hæð gamla hesthússins.
26. maí 2010
Vinnulota með Árna Páli og SirríÁrni Páll leikmyndahönnuður, Sigríður safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga og Arna Björg framkvæmdastjóri Sögusetursins áttu góða og árangursríka vinnulotu á Hólum í dag vegna fyrirhugaðrar sýningar Sögusetursins og Byggðasafns Skagfirðinga á Hólum.
26. maí 2010
Kveðjukaffi í dagÞórey Helgadóttir, sem starfað hefur á Sögusetri íslenska hestsins í eitt og hálft ár flutti í dag ásamt fjölskyldu sinni aftur á heimaslóðir í Bláskógabyggð.
25. maí 2010
Sögusetrið í nýtt húsnæðiÍ dag lauk flutningum úr gamla hesthúsinu á Hólum sem áður var smíðaverkstæði (á efri hæð) og áhaldageymsla (á neðri hæð).
18. maí 2010
Sumarstörf á Sögusetri íslenska hestsins
Fjögur störf eru laus til umsóknar á Sögusetri íslenska hestsins í sumar. Störfin eru tímabundin átaksverkefni á vegum ráðuneyta og undirstofnana þeirra.
4. maí 2010
Siggi í Syðra gestastarfsmaður á SögusetrinuSigurður Sigmundson, hestaljósmyndari er gestastarfsmaður á Sögusetri íslenska hestsins þessa dagana. Hann vinnur að því að bera kennsl á ljósmyndir og fullskrá þær í ljósmyndagagnabanka Sögusetursins.
27. apríl 2010
Frábær atvinnulífssýningHátt á þriðja þúsund manns heimsóttu sýninguna Skagafjörður Lífsins gæði og gleði sem fram fór í Síkinu um helgina.
5. apríl 2010
Sögusetrið í sjónvarpsþáttagerðSögusetur íslenska hestsins hefur umsjón með þáttunum Dansað á fáksspori. Umsjónarmaður þáttanna er Arna Björg Bjarnadóttir, forstöðumaður Söguseturs Íslenska hestsins, og framleiðandi er Skotta.
11. mars 2010
Starfsmenn á námskeiði
Í dag voru starfsmenn Sögusetursins á námskeiði til að læra á nýjan vefhugbúnað. Hann verður notaður til að birta ljósmyndir Setursins á veraldarvefnum.
8. mars 2010
Leiðir til að birta Orðfák kannaðarMagnús Sigurðsson læknir og hestamaður afhenti eins og kunnugt er, Sögusetrið íslenska hestsins verk sitt Orðfák. Um er að ræða yfirgripsmikið orða- og alfræðirit um íslenska hestinn.
5. febrúar 2010
Vegleg gjöfMagnús Sigurðsson læknir og hestamaður færði Háskólanum á Hólum og Sögusetri íslenska hestsins veglega gjöf við athöfn í dag.
4. janúar 2010
Skönnun á safni Einars lokiðNú hefur verið lokið við að skanna og grunnskrá ljósmyndasafn Einars E. Gíslasonar sem hann færði Sögusetrinu haustið 2008.
23. desember 2009
Jólakveðja
Sögusetur íslenska hestsins óskar öllum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
15. desember 2009
Alvarleg skerðing á fjárlögum 2010Útlit er fyrir að Sögusetur íslenska hestsins verði fyrir 30% skerðingu á fjárlögum 2010 frá fyrra ári. Lagt er til á alþingi að Sögusetrinu verði úthlutað 4,2 milljónum króna, en það hlaut 6 milljónir króna á ári, 2007 og 2008.
23. október 2009
Sögusetrið meðal styrkhafaMenningarráð Norðurlands vestra úthlutaði styrkjum til margvíslegra verkefna þann 21. október síðastliðinn. Sögusetur íslenska hestsins hlaut tvær styrkveitingar, annars vegar til söfnunarátaks og hins vegar til sýningagerðar fyrir yfirlitssýningu um íslenska hestinn.
19. október 2009
Skemmtilegt HrossablótGestir á Hrossablóti Sögusetursins voru afar ánægðir með kvöldið. Friðrik V og Þórhildur matreiðslumeistari á Hótel Varmahlíð töfruðu fram hvern réttinn á fætur öðrum.
16. október 2009
Gott er að eiga góða grannaUndirbúningur fyrir Hrossablótið á laugardagskvöldið, 17. október, er nú í fullum gangi. Friðrik V. og Þórhildur hafa staðið í ströngu við að grafa, marinera og reykja folalda- og hrossakjöt undanfarna daga.
21. september 2009
Lumar þú á reiðfatnaði?Sögusetrið leitar nú logandi ljósi að reiðfatnaði frá öllum tímabilum sem karlar, konur og börn gengu í. Um er að ræða „tvít" jakka, aðsniðna jakka, félagsbúninga, peysur, pokabuxur, reiðbuxur þröngar niður(hvítar, svartar ofl.
19. júní 2009
Upplifðu kaupstaðarferðHestaleikhús Söguseturs íslenska hestsins í samstarfi við Hestaleigu Ingimars Pálssonar stendur fyrir kaupstaðaferð á Sauðárkrók, í tilefni af Lummudögum í Skagafirði laugardaginn 27.
3. júní 2009
Heimsókn á Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Starfsmenn Söguseturs íslenska hestsins eru í dag í sinni árlegu heimsókn á Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Sögusetrið hefur fengið ómælda faglega aðstoð hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur við uppsetningu Ljósmyndasafns íslenska hestsins.
2. apríl 2009
Sauðárkrókshrossin í fjölmiðlumFjallað var um ráðstefnu Sögusetursins um Sauðárkrókshrossin í ýmsum fjölmiðlum, t.d. á Stöð 2, Ríkisútvarpinu og í Morgunblaðinu.
23. mars 2009
Úrslit í frumkvöðlakeppni InnovitHanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri afhenti sigurlaun í Frumkvöðlakeppni Innovit í Ráðhúsi Reykjavíkur í á laugardagskvöldið.
10. mars 2009
Sauðárkrókshrossin - skráning á ráðstefnu hafinRáðstefna um Sauðárkrókshrossin verður haldin á vegum Söguseturs íslenska hestsins, laugardaginn 21. mars 2009. Ráðstefnan fer fram í Frímúrarahúsinu, Borgarmýri 1 á Sauðárkróki og hefst kl.
10. febrúar 2009
Sögusetrið safnar myndum af félagsbúningumSögusetrið hefur hafið söfnun á ljósmyndum af búningum hestamannafélaga, gömlum sem nýjum. Eigendur myndanna geta fengið myndirnar til baka að lokinni skönnun eða varðveitt þær í Sögusetrinu.
4. febrúar 2009
Rit um liti íslenska hestsinsNýlega kom út, á vegum Háskólans á Hólum og Landbúnaðarháskóla Íslands, rit sem ber heitið Litir og litbrigði íslenska hestsins. Höfundar eru Guðrún J. Stefánsdóttir og Guðni Þorvaldsson.
27. janúar 2009
Ráðstefna um Sauðárkrókshrossin, 21. marsRáðstefna um Sauðárkrókshrossin verður haldin á vegum Söguseturs íslenska hestsins, laugardaginn 21. mars 2009. Ráðstefnan fer fram í Frímúrarahúsinu á Sauðárkróki og hefst kl.
23. desember 2008
Jólakveðja frá SögusetrinuSögusetur íslenska hestsins óskar samstarfsaðilum og velunnurum setursins gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
3. nóvember 2008
Ráðstefnu um Sauðárkrókshrossin FRESTAÐRáðstefnu Sögusetursins, um Sauðárkrókshrossin, sem vera átti 22. nóvember 2008, verður frestað vegna óviðráðanlegra orsaka fram í mars 2009. Endanleg dagsetning mun liggja fyrir á næstu dögum.
24. október 2008
Myndarlegur styrkur MenningarráðsSögusetri íslenska hestsins var úthlutað á dögunum afar myndarlegum styrk frá Menningarráði Norðurlands vestra, alls að upphæð 1.600.000.- Styrkurinn gerir Sögusetrinu mögulegt að halda áfram vinnu við uppsetningu á stafrænu ljósmyndasafni um íslenska hestinn.
22. október 2008
Hrossaveislan í fjölmiðlumFjölmiðlar veittu hrossaveislu Sögusetursins sem haldin var í samstarfi við Hótel Varmahlíð og Friðrik V. allmikla athygli. Umfjöllun um veisluna má finna með því að smella á hlekkina hér að neðan.
21. október 2008
Vel heppnuð hrossaveislaHrossaveisla Söguseturs íslenska hestsins sem unnin var í samstarfi við Hótel Varmahlíð og Friðrik V. á Akureyri og fram fór á Hótel Varmahlíð laugardagskvöldið 18. október sl.
17. október 2008
Örfá sæti laus í hrossaveislunaÖrfá sæti eru laus á skemmti- og fræðslukvöld Sögusetursins um hrossakjötsneyslu landsmanna fyrr og nú sem fram fer á Hótel Varmahlíð annað kvöld, laugardagskvöldið 18. október.
16. október 2008
Kaplamjólk í hrossaveislunniFriðrik V. varð sér úti um kaplamjólk fyrir hrossaveisluna sem fram fer á Hótel Varmahlíð, laugardagskvöldið 18. október. Það verður því spennandi að sjá og smakka hvað þau Friðrik V.
10. október 2008
Ungverjar heimsækja Sögusetrið
Ellefu manna hópur háskólakennara frá Ungverjalandi, heimsótti á dögunum Sögusetur íslenska heststsins, kynnti sér starfsemi þess og framtíðarmarkmið. Auk þess sem forstöðumaður setursins fræddi þau um hlutverk hestsins í þjóð- og atvinnulífi Íslendinga fyrr og nú.
5. október 2008
Hrossaveisla SögusetursinsSögusetrið stendur fyrir fræðslu- og skemmtikvöldi um hrossakjötsneyslu landsmanna fyrr og nú, í samstarfi við Veitingastaðinn Friðrik V á Akureyri og Hótel Varmahlíð, laugardagskvöldið 18.
30. september 2008
Nemendur í Nordisk friluftsliv á ÍslandiSögusetrið hélt í gær, annað árið í röð, námskeið um íslenska hestinn fyrir nemendur á Norðurlöndum sem leggja stund á útivistarfræði. Um er að ræða samnorrænt verkefni og fer kennslan fram hér á landi og á Norðurlöndunum.
7. september 2008
Skráningu á ljósmyndasafni Friðþjófs lokiðSkönnun og frumskráningu Sögusetursins á ljósmyndasafni Friðþjófs Þorkelssonar er nú lokið. Friðþjófur lést á líknardeild Landsspítalans 20. febrúar 2008. Skömmu fyrir andlátið færði hann Sögusetrinu ljósmyndasafn sitt.
25. ágúst 2008
Sögusetrið á landbúnaðarsýningunumSögusetrið tók þátt í landbúnaðarsýningunni á Sauðárkróki dagana 15.-17. ágúst og á Hellu dagana 22.-24. ágúst. Sögusetrið og Háskólinn á Hólum kynntu starfsemi sína í sameiginlegum bás á báðum sýningunum.
27. júní 2008
Fjölbreytt dagskrá á HestatorginuÍslenska hestatorgið er samstarfsverkefni Félags hrossabænda, Félags tamningamanna, Hólaskóla, Landbúnaðarháskóla Íslands, Söguseturs íslenska hestsins, WorldFengs, Landssambands hestamannafélaga og Landsmóts ehf.
25. apríl 2008
Kastljós í heimsóknGísli Einarsson fréttamaður leit við á leikæfingu hjá Sögusetrinu í reiðhöllinni á dögunum. Sjá í Kastljósþætti Ruv: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/
14. apríl 2008
Dagskrá Tekið til KostannaBoðið er uppá fjölbreytta dagskrá á Tekið til kostanna. Auk stórsýninga í Reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki, býður Hólaskóli uppá fjölbreyttar kennslusýningar. Í Reiðhöllinni verður einnig handverksmarkaður, kaffihús og myndlistasýning.
8. apríl 2008
Hestaleikhús SögusetursinsSögusetur íslenska hestsins mun taka þátt í Tekið til kostanna, alþjóðlegum hestadögum sem haldnir eru í Skagafirði fyrstu helgi sumars ár hvert. Á stórsýningu Tekið til kostanna í reiðhöllinni á Sauðárkróki, föstudags- og laugardagskvöldið 25.
6. apríl 2008
Menningarráð styrkir SögusetriðÚthlutun menningarstyrkja Menningarráðs Norðurlands vestra fór fram á Blönduósi, laugardaginn 5. apríl síðastliðinn. Menningarráðið veitti Sögusetri íslenska hestsins alls 1 milljón krónu stuðning til tveggja verkefna.
6. mars 2008
Málþingi um járningar FRESTAÐSögusetur íslenska hestsins hefur þurft að fresta málþingi sem vera átti laugardaginn 20. mars, um járningar á 20. öld. Stefnt er á að halda það eftir páska, nánar auglýst síðar.
6. febrúar 2008
Nýr starfsmaður á SögusetriðAldís Fjóla Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin starfsmaður Söguseturs íslenska hestsins í 40% starf til 1. september 2008. Hún mun vinna að gerð stafræns ljósmyndasafns.
16. janúar 2008
Friðþjófur Þorkelsson færir Sögusetrinu ljósmyndasafn sitt
Friðþjófur Þorkelsson, hestamaður hefur fært Sögusetri íslenska hestsins ljósmyndasafn sitt að gjöf. Ljósmyndasafn Friðþjófs spannar marga áratugi og hefur að geyma ljósmyndir sem teknar hafa verið við margvísleg tækifæri, svo sem á hestamótum, í hestaferðum en sérstaklega þó af stóðhestum og hestalitum.
9. nóvember 2007
Frumteikning af gæðingaskeiði afhent SögusetrinuÞann 15. október síðastliðinn, afhenti Friðþjófur Þorkelsson Sögusetri íslenska hestsins frumteikningu af gæðingaskeiði sem var samið af Friðþjófi og Eyjólfi Ísólfssyni í upphafi 8.
29. október 2007
Menningarráð Norðurlands vestra veitir Sögusetrinu styrkiMenningarráð Norðurlands vestra veitti Sögusetri íslenska hestsins styrki til tveggja verkefna, annars vegar til uppsetningar Theodórsstofu, alls 500.000 krónur og hins vegar til að byggja upp heimildarbanka um íslenska hestinn, alls 500.
29. október 2007
Málstofa um járningar á miðöldumJón Árni Friðjónsson, sagnfræðingur mun fjalla um sögu járninga á miðöldum á málstofu Söguseturs íslenska hestsins, fimmtudaginn 1. nóvember. Málstofan fer fram í Hátíðarsal Hólaskóla og hefst kl.
23. ágúst 2007
Af málstofu um sögu hestsins útfrá fornleifum
Sögusetur íslenska hestsins stóð fyrir málstofu um sögu hestsins út frá fornleifum á Hólum í Hjaltadal 21. ágúst sl. Hestabein sem fundist hafa við fornleifauppgröft eru ómetanlegar heimildir um sögu hestsins; uppruna hans, heilsufar og notkun í gegnum aldirnar.
16. ágúst 2007
Saga hestsins útfrá fornleifumSögusetur íslenska hestsins stendur fyrir málstofu um sögu hestsins útfrá fornleifum, þriðjudaginn 21. ágúst, kl. 13:00-15:00, að Hólum í Hjaltadal. Hestabein sem fundist hafa við fornleifauppgröft eru ómetanlegar heimildir um sögu hestsins; uppruna hans og notkun í gegnum aldirnar.
16. ágúst 2007
Vel heppnað HestatorgHeimsmeistaramóti íslenska hestsins árið 2007 lauk með verðlaunaafhendingu og kveðjuræðu forseta NSIJP - Íslandshestafélagsins í Hollandi. Það var samdóma álit að allt skipulag mótsins var Hollendingum til sóma og var þjónustulund hinna 500 sjálfboðaliða mótsins til mikillar fyrirmyndar.
11. ágúst 2007
Fjölbreytt dagskrá á HestatorginuÍslenska hestatorgið hefur nú risið á heimsleikunum í Hollandi og þar verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá.
Fimmtudaginn 9. ágúst var torgið opnað formlega kl. 17:20, en það er staðsett í tveimur tjöldum á markaðs- og sölusvæði mótsins.
23. júlí 2007
Sögusetrið á Heimsmeistaramótinu í HollandiUndirbúningur Söguseturs íslenska hestsins fyrir Heimsmeistaramót íslenska hestsins er nú á lokastigi. Sögusetrið mun kynna starfsemi sína á Íslenska hestatorginu, The Icelandic Horse Plaza sem sett verður upp á Heimsmeistaramótinu í Hollandi 6.
26. júní 2007
Gísli Pálsson afhendir Hesta í Norðri
Föstudaginn 22. júní, afhenti Gísli Pálsson á Hofi, Sögusetri íslenska hestsins bókaflokkinn Hestar í Norðri á íslensku, ensku og þýsku og Reiðmenn á Íslandi á íslensku og þýsku.
25. júní 2007
Samkomulag um söfnun og varðveislu munaSögusetur íslenska hestsins og Byggðasafn Skagfirðinga undirrituðu nýverið samkomulag um söfnun og varðveislu muna. Samningurinn felur í sér að allir munir sem Sögusetrið safnar í samræmi við söfnunarstefnu Byggðasafnsins og tengjast sögu íslenska hestsins verða skráðir og varðveittir á Byggðasafni Skagfirðinga.
25. maí 2007
Styrkveitingar ÞjóðhátíðarsjóðsAfhending styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði fór fram í Þjóðmenningarhúsinu fimmtudaginn 24. maí. Meðal styrkhafa var Sögusetur íslenska hestsins sem hlaut 500 þúsund króna stuðning til heimildarskráningar.
13. maí 2007
Æskan og hesturinnHúsfyllir var á báðum sýningum Æskan og hesturinn sem fram fór í Reiðhöllinni Svaðastöðum, laugardaginn 12. maí. Sögusetrið tók þátt í uppsetningu sögusýningar í andyri reiðhallarinnar og í sýningaratriðinu Í áranna rás.
21. apríl 2007
Theodórsþingið og opnun Theodórsstofu vel sóttTheodórsþing og opnun Theodórsstofu sem Sögusetur íslenska hestsins stóð fyrir að Hólum í Hjaltadal síðdegis í gær, til minningar um Theodór Arnbjörnsson hrossaræktarráðunaut, sóttu um sjötíu manns.
13. apríl 2007
Theodórsþing á alþjóðlegum hestadögum í SkagafirðiSögusetrið stendur fyrir Theodórsþingi, föstudaginn 20. apríl 2007, kl. 16.00-17.30 að Hólum í Hjaltadal. Á þinginu verður fjallað um ævi og störf Theodórs Arnbjörnssonar, hrossaræktarráðunautar Búnaðarfélags Íslands og sýningin Theodórsstofa formlega opnuð.
21. febrúar 2007
Rekstrarhandbók fyrir hestaferðaþjónustuFerðamáladeild Hólaskóla gaf nýverið út handbók, fyrir hestaleigur og hestaferðafyrirtæki, um stjórnun og rekstur í ferðaþjónustu. Höfundur bókarinnar er Ingibjörg Sigurðardóttir, kennari við ferðamáladeild skólans.
14. febrúar 2007
Styrkur frá ByggðarráðiByggðarráð Skagafjarðar samþykki á fundi sínum í gær að veita Sögusetri íslenska hestsins rekstrarstyrk að upphæð kr. 1.500.000.- Styrkurinn eykur svigrúm stofnunarinnar og möguleika hennar til að sækja um í sjóði þar sem krafist er krónu á móti hverri krónu sem fæst í styrk.
19. desember 2006
Sögusetrið gert að sjálfseignarstofnunÞann 7. desember var Sögusetur íslenska hestsins gert að sjálfseignarstofnun. Tilgangur með stofnuninni er að styrkja stöðu setursins og einfalda rekstur þess. Stofnendur eru Byggðasafn Skagfirðinga og Hólaskóli.
3. október 2006
Laufskálarétt 2006Laugardaginn 30. september voru hross úr Kolbeinsdalsafrétt rekin til Laufskálaréttar í Skagafirði. Að venju var margt um manninn í firðinum þessa helgi enda er Laufskálarétt fjölsóttasta stóðrétt landsins.
2. október 2006
Uppskeruhátíð Skagfirðinga 2006Húsfyllir var á Uppskeruhátíð Skagfirðinga í Reiðhöllinni Svaðastöðum, föstudagskvöldið 1. september og glatt á hjalla. Hrossaræktarbú ársins 2006 í Skagafirði reyndist vera Hólaskóli enda var árangur búsins í ræktunargeiranum glæsilegur svo og voru öflug hross þaðan á keppnisvellinum, en við þetta val er einnig tekið tillit til árangurs í gæðingakeppni og hestaíþróttum.
12. september 2006
Sögusetrinu færðar fleiri gjafirSögusetrinu voru færðir átta árgangar af tímaritinu Hestinum okkar en þeir spanna tímabilið 1978 til 1985. Sögusetrið þakkar kærlega fyrir góða og nytsama gjöf.
28. ágúst 2006
Sögusetrinu færðar mótaskrár
Á dögunum var Sögusetrinu færðar mótaskrár frá Landsmótum og Fjórðungsmótum sem út komu á árabilinu 1966 til 1985. Safnið er nokkuð heilt en þó vantar í það nokkrar skrár.
10. ágúst 2006
Sögusetrið á landbúnaðarsýningunniLandbúnaðarsýning fer fram í Reiðhöllinni, Svaðastaðir, helgina 18.-20. ágúst og hefst kl. 13:00 á föstudag. Margt verður þar að sjá og er ástæða til að hvetja fólk til að líta við.
20. júní 2006
Spennandi dagskrá á HestatorginuGuðni Ágústsson landbúnaðarráðherra opnar Íslenska Hestatorgið 2006 á Vindheimamelum fimmtudaginn 29.júní 2006 kl.15.00.
Íslenska hestatorgið 2006 er, eins og fyrr hefur komið fram í fréttum Sögusetursins, nýtt samstarfsverkefni Félags hrossabænda, Félags tamningamanna, Hólaskóla, Söguseturs íslenska hestsins og WorldFengs.
8. júní 2006
Íslenska hestatorgiðÞessa dagana er unnið hörðum höndum að undirbúningi á Íslenska hestatorginu 2006 . Íslenska hestatorgið samstarfsverkefni Söguseturs íslenska hestsins, Félags hrossabænda, Félags tamningamanna, Hólaskóla og WorldFeng.
15. maí 2006
Starfsemi Söguseturs íslenska hestsins hefst á ný
Á vordögum hófst starfsemi Söguseturs íslenska hestsins eftir tæplega tveggja ára hlé á starfseminni. Arna Björg Bjarnadóttir var ráðin forstöðumaður setursins. Arna Björg starfaði áður sem alþjóðafulltrúi hjá Rannís, Rannsóknamiðstöð Íslands.
|