Sögusetur íslenska hestsins Skagafjörður
Á forsíðu Prenta síðu Veftré LEITA
English
Sögusetur íslenska hestsins ses - Hólum í Hjaltadal - 551 Sauðárkrókur - Sími: 455 6345 - Fax: 455 6301 - kt 4712060320 - sogusetur@sogusetur.is

 Erindi og greinar

Hrafnkell Lárusson, sagnfræðingur flutti erindi um hrossakjötsneyslu landsmanna, frá almennu forboði til daglegrar neyslu, á Hrossablóti Sögusetursins þann 18. október 2008. Útdrátt úr erindinu er að finna hér að neðan. Um hrossakjötsát: Um aldir var það almennt viðhorf í íslensku samfélagi að algjört bann væri við því að leggja sér hrossakjöt til munns. Þetta bann var tengt túlkun á Biblíunni, sem fól í sér að einungis mætti borða kjöt af klaufdýrum. Bannið við hrossakjötsáti var fornt en neysla þess var meðal annars notuð til að greina á milli heiðinna manna og kristinna í frumkristni á Norðurlöndum. Í fyrstu íslensku kristnilögunum er hrosskjötsát lagt að jöfnu við barnaútburð og skurðgoðadýrkun. Viðbjóður manna á hrossakjöti var svo mikill að það eitt að handfjatla eða nýta sér...
 meira

   Fleiri erindi og greinar

Fróðleiksmoli

Hestaþorpari er reiðmaður sem notar hestinn eins og motor, ríður hart... meira
Fyrri fróðleiksmolar

Vísa vikunnar

Á hestbak stíg ég strax,     studdur til ferðalags.         Ó, Jesús að mér gæti,    engu vondu svo mæti.   Sr. Þorsteinn Oddsson

Allar vísur vikunnar

 Fréttir

20. ágúst 2010
Óvenjuleg og skemmtileg kveðja frá Sögusetri íslenska hestsins
Í tilefni af opnun sýninga Sögusetursins að Hólum í Hjaltadal bendum við fólki á næla sér í skemmtilegan hringitón og leggja okkur þannig lið við að kynna íslenska hestinn og Sögusetrið.
15. ágúst 2010
Tímamót - Sögusetrið opnar fyrir gestum og gangandi
Sögusetur íslenska hestsins á Hólum í Hjaltadal flutti í nýuppgert húsnæði og opnaði fyrsta áfanga af þremur í yfirlitssýningunni, Íslenski hesturinn og myndbands- og ljósmyndasýninguna, Hesturinn í náttúru Íslands, laugardaginn 14.
11. ágúst 2010
Lokaspretturinn - innlit
Nú er sigið á seinnihlutann og markmiði senn náð.  Sögusetrið opnar fyrir gesti næstkomandi laugardag klukkan 18:00.  Ljósmyndari (Helgi Thoroddsen) laumaði sér inn og náði nokkrum einstökum myndum af einbeittu fólki við störf og laumaði þeim á netið.
12. júlí 2010
Sögusetur íslenska hestsins í umfjöllun hjá N4
N4 komu í ánægjulega heimsókn í Sögusetur íslenska hestsins nýverið og tóku viðtal við Örnu Björg framkvæmdarstjóra.

  Skoða allar fréttir 

Myndir


Aðstoðaðu Sögusetrið við að bera kennsl á myndefnið sogusetur@sogusetur.is

Réttir
Réttir

Réttir
Réttir

Réttir
Réttir

Réttir
Réttir

Reykjarétt 1938
Reykjarétt 1938

Ferjað yfir Blöndu
Ferjað yfir Blöndu