Fara í efni

Vinadagur í Skagafirði 19. október

18.10.2016
Frá Vinadeginum 2015

Vinadagurinn í Skagafirði er á morgun 19. október í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Þetta er í fimmta sinn sem Vinadagurinn er haldinn og er almenn ánægja meðal nemenda og starfsfólks skólanna með daginn.

Allir nemendur grunnskólanna í Skagafirði hittast í íþróttahúsinu kl 10 ásamt skólahópum leikskólanna og fyrstu árs nemum FNV og skemmta sér saman eins og sannir vinir eiga að gera. Aldurshópar verða með samveru milli kl 10 og 12:30 og síðan er sameiginleg dagskrá kl 12:30-13. Dagskráin samanstendur af samveru, söng, leik og dansi.

Allir Skagfirðingar eru boðnir velkomnir í íþróttahúsið og taka þátt í sameiginlegu dagskránni sem hefst kl 12:30.