Fara í efni

Tónlistarskóli Skagafjarðar auglýsir laus störf

27.07.2015

 

Tónlistarskóli Skagafjarðar auglýsir laus störf

Tónlistarskóli Skagafjarðar óskar eftir að ráða tvo fiðlukennara fyrir skólaárið 2015-16. Annan í 100% stöðu og hinn í 50% forfallakennslu vegna fæðingarorlofs, sem getur kennt á selló og kontrabassa.

Menntunar- og hæfniskröfur: Æskilegt er að viðkomandi hafi fiðlukennaramenntun eða sambærilega menntun ásamt reynslu af kennslu. Viðkomandi þarf að vera fær í mannlegum samskiptum og hafa ánægju af að vinna með börnum. Auk þess að vera metnaðarfullur og áhugasamur.

Störfin henta jafnt konum sem körlum. Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við FT eða FIH.

Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2015

Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar um störfin gefur Sveinn Sigurbjörnsson í síma: 453-5790 / 849-4092 eða með því að senda fyrirspurn á tons@skagafjordur.is