Fara í efni

Sundlaug Sauðárkróks auglýsir eftir starfsmanni

08.02.2016

Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir að ráða karlmann til starfa í Sundlaug Sauðárkróks. Um eitt starf er að ræða í 92% starfshlutfalli. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Lýsing á starfinu: Í starfinu felst meðal annars baðvarsla, þrif og afgreiðslustörf

Menntunar- og hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri. Æskilegt er að viðkomandi sé með björgunarsundpróf. Leitað er að einstaklingi sem hefur til að bera hæfni í mannlegum samskiptum og ríka þjónustulund.

Vinnutími: Unnið er í vaktavinnu.

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar 2016.


Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf), eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar um starfið gefur Þorvaldur Gröndal, forstöðumaður frístunda- og íþróttamála, í síma 660-4639 eða valdi@skagafjordur.is