Fara í efni

Sumarstörf á Leikskólanum Ársölum

15.05.2017

Sumarstörf á Leikskólanum Ársölum

Framlengdur umsóknarfrestur

 

Tímabil: Frá 1. júní til 15. ágúst 2017, eða eftir samkomulagi.  Möguleiki er á áframhaldandi ráðningu.

Fjöldi og starfshlutfall: 5 störf í 100% starfshlutfalli.

Vinnutími: Dagvinna.

Lýsing á starfinu: Í starfinu felst að vinna að uppeldi og menntun barnanna undir stjórn deildastjóra. Fylgjast með velferð þeirra og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar. Störfin henta konum jafnt sem körlum.

Hæfniskröfur: Umsækjendur þurfa að búa yfir færni í mannlegum samskiptum, sýna frumkvæði og sjálfstæði. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi, stundvísi og áreiðanleika í starfi. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag

Umsóknarfrestur er til og með 28. maí 2017

Nánari upplýsingar: Aðalbjörg Þorgrímsdóttir, leikskólastjóri , arsalir@skagafjordur.is, 455-6090.

Umsóknir: Umsókn ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

  

Einkunnarorð leikskólans eru: Vinátta – Virðing – Vellíðan.

Ársalir er níu deilda leikskóli rekinn í tveimur húsum sem annars vegar hýsir eldra stig og hins vegar yngra stig. Eldra stig hefur aðsetur við Árkíl og þar eru 2 – 5 ára börn á sex deildum, sem heita; Höfði, Laut, Hlíð, Þúfa, Skógar og Klettur. Yngra stig er staðsett við Víðigrund og þar eru 1-2 ára börn á þremur deildum sem heita; Lón, Lind og Lækur.