Fara í efni

Starfsmann vantar í sundlaug Varmahlíðar vegna forfalla í júlí og ágúst

23.06.2017

Tímabil:                                  1. júlí til 31. ágúst 2017.

Starfsheiti:                            Sundlaugarvörður I.

Starfshlutfall:                      80% starfshlutfall.

Lýsing á starfinu:                Starfið felst m.a. í öryggisgæslu við sjónvarpsskjá og laug, auk eftirlits með öryggiskerfum, afgreiðsla og baðvarsla.

Hæfniskröfur:                     Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri, hafa ríka þjónustulund og samstarfsvilja. Reynsla er kostur og björgunarsundpróf er æskilegt. Starfið hentar konum jafnt sem körlum.

Vinnutími:                            Vaktavinna.

Launakjör:                             Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur:              Er til og með 29. júní 2017.

Nánari upplýsingar:          Hanna Dóra Björnsdóttir, skólastjóri Varmahlíðarskóla, í síma 898-6698 eða hannadora@varmahlidarskoli.is.

Umsóknir:                             Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins eða í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

 

 

Í íþróttamiðstöðinninni í Varmahlíð er m.a. að finna sundlaug, íþróttasal, áhaldasal og gufubað. Sundlaugin er tvískipt útilaug. Annars vegar er 12,5 x 25 metra laug og hins vegar 12,5 x 8 m „barnalaug“. Í þeirri síðarnefndu er vatnið haft heitara en í stærri lauginni og þar er lítil rennibraut. Nýtur hún mikilla vinsælda meðal fjölskyldufólks. Einnig er heitur pottur við laugarnar.