Fara í efni

Skipulagslýsing vegna deiliskipulags við Hegranesþingstað

02.05.2016
Við Hegranesþingstað

Auglýsing um skipulagslýsingu vegna deiliskipulags Hegranesþingstaðar í Skagafirði. 

Gerð hefur verið skipulagslýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir Hegranesþingstað í landi Garðs í Hegranesi. Skipulagslýsingin gerir ráð fyrir nýju deiliskipulagi fyrir hinn forna þingstað og nánasta umhverfi, svæðið er í dag lítið afmarkað. Skipulagssvæðið er um 12,5 ha að stærð. 

Framangreind skipulagslýsing var samþykkt á fundi Skipulags- og byggingarnefndar þann 4. desember 2015, staðfest á fundi sveitarstjórnar þann 9. desember 2015.

Skipulagslýsingin er aðgengileg á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar og til sýnis í Ráðhúsinu við Skagfirðingabraut 17-21  frá 29. apríl til 25. maí 2016.

Skriflegum ábendingum við skipulagslýsinguna  skal skila til skipulags – og byggingarfulltrúa  í Ráðhúsinu við Skagfirðingabraut eigi síðar en 25. maí 2016.  

 

Sauðárkróki 27. apríl 2016

Jón Örn Berndsen skipulags- og byggingarfulltrúi