Fara í efni

skagafjordur.is í þriðja sæti sveitarfélagavefja

27.11.2015

Árlega er gerð úttekt á vefjum opinberra stofnana og sveitarfélaga og að þessu sinni lenti skagafjordur.is í þriðja sæti ásamt tveimur öðrum með 87 stig. Það var vefurinn akranes.is sem var valinn besti sveitarfélagsvefurinn og island.is, vefur Þjóðskrár, besti ríkisvefurinn. Þetta er í sjötta sinn sem slík úttekt er gerð en úrslit voru kynnt í gær á ráðstefnu um upplýsingatækni og lýðræði á vegum Skýrslutæknifélags Íslands. Nánar má lesa um könnunina og úrslitin á UT vefnum.