Fara í efni

Lokun á Skagfirðingabraut við Árskóla

27.10.2016
Lokun Skagfirðingabrautar dagana 28. til 30. október.

Um helgina, dagana 28. til 30. október, verður unnið að lagfæringum á hraðahindrun / gangbraut yfir Skagfirðingabraut við Árskóla á Sauðárkróki. 
Framkvæmdin er liður í uppsetningu gangbrautarljósa við gangbrautina
Af þeim sökum þarf að loka Skagfirðingabraut og hleypa umferð um Víðigrund á meðan eins og sjá má á meðfylgjandi teikningu. 
Lokunin mun taka gildi eftir hádegi á morgun, föstudag. 
Umferð að íþróttahúsi og Árskóla verður hleypt um Skagfirðingabraut að norðanverðu. 
Gert er ráð fyrir að opnað verði fyrir umferð að nýju á sunnudagskvöld.