Fara í efni

Ljósmynda- og myndbandasamkeppni

08.03.2016
Drangey séð frá skreiðarhjöllunum

Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir nú eftir þátttöku í ljósmynda- og myndbandasamkeppni um myndir teknar í Skagafirði. Þemað er náttúra og mannlíf í sveitarfélaginu. Keppnin mun standa yfir til hádegis þann 31. júlí næstkomandi.

Tilgangur keppninnar er að fá gott myndefni til kynningar á sveitarfélaginu með liðsinni íbúa og annarra sem leið eiga um héraðið. Keppt er í tveimur flokkum, um bestu myndina og besta myndbandið og eru veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í hvorum flokki.

Skráning er á netfangið ljosmyndir@skagafjordur.is og hægt er að kynna sér keppnina nánar hér, reglur og verðlaun.