Fara í efni

Hlutastarf í liðveislu er laust til umsóknar

26.04.2017

 Hlutastarf í liðveislu er laust til umsóknar

 

Tímabil starfs: 5. maí - 10. september 2017, með möguleika á áframhaldandi starfi.

Starfshlutfall: 13% starfshlutfall.

Starfsheiti: Félagsleg liðveisla I.

Lýsing á starfinu: Leitað er eftir starfsmanni til að sinna félagslegum stuðningi við fatlaðan einstakling.

Menntunar- og hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hefur til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Launakjör: Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2017

Nánari upplýsingar: Sigþrúður Jóna Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi, í síma 455-6082 eða með tölvupósti, sigthrudurh@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.