Fara í efni

Fjölskylduþjónusta Skagafjarðar óskar eftir að ráða kvenkyns starfsmann tímabundið við búsetuþjónustu

19.01.2017

Fjölskylduþjónusta Skagafjarðar óskar eftir að ráða kvenkyns starfsmann tímabundið við búsetuþjónustu

Tímabil starfs: 8. febrúar til maíloka með möguleika á þriggja mánaða lengingu eða til ágústloka. 

Starfshlutfall: 50% starfshlutfall.

Starfsheiti: Starfsmaður á sambýli II.

Lýsing á starfinu: Starfsmaður aðstoðar kvenkyns fatlaðan einstakling við athafnir daglegs lífs og sinnir líkamlegum og félagslegum þörfum eftir því sem við á.

Menntunar- og hæfniskröfur:  Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hefur til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Vaktavinna (dag- og kvöldvaktir).

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar 2017

Nánari upplýsingar: Veitir Sigþrúður Jóna Harðardóttir í síma 455-6082 eða með tölvupósti á netfangið sigthrudurh@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.