Fara í efni

Fjölskylduþjónusta Skagafjarðar auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf á sambýlinu í Fellstúni

07.12.2016

Fjölskylduþjónusta Skagafjarðar auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf á sambýlinu í Fellstúni.

Tímabil starfs: Frá miðjum janúar 2017 til maíloka 2017, með möguleika á þriggja mánaða lengingu eða til lok ágústs 2017.

Starfshlutfall: 85% starfshlutfall.

Lýsing á starfinu: Starfsmaður aðstoðar fatlað fólk við athafnir daglegs lífs og sinnir líkamlegum og félagslegum þörfum eftir því sem við á.

Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hefur til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Unnið er á vöktum allan sólarhringinn.

Starfsheiti: Starfsmaður á sambýli II.

Launakjör: Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 22. desember 2016

Nánari upplýsingar: Edda Haraldsdóttir, forstöðumaður, í síma 453-6692 eða með tölvupósti fellstun@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.