Fara í efni

Dagur leikskólans 6. febrúar

02.02.2016

Næstkomandi laugardag 6. febrúar er dagur leikskólans og ætla allir leikskólarnir í Skagafirði að gera eitthvað í tilefni dagsins.

Leikskólinn Birkilundur í Varmahlíð bauð foreldrum í þorramat í morgun en leikskólinn á einnig 17 ára afmæli þessa dagana. Krakkarnir í Ársölum á Sauðárkróki munu syngja fyrir viðskiptavini í Skagfirðingabúð í fyrramálið 3. febrúar kl 10 og því um að gera fyrir þá sem geta að mæta og hlusta á krakkana. Nemendur í leikskólanum Tröllaborg, sem er á Hofsósi og Hólum, munu bjóða foreldrum í bollukaffi á mánudaginn en bolludagurinn er einmitt handan við hornið.