Fara í efni

Bilun í kaldavatnslögn á Hólavegi

03.02.2016

Kominn er upp leki í kalda vatninu sunnarlega á Hólavegi. Til að viðgerð geti farið fram þarf að loka fyrir rennsli á Hólavegi sunnan Öldustígs, Hólmagrund og Fornósi. 

Búast má við lokun upp úr klukkan 10 og að hún muni standa eitthvað fram eftir degi. Skagafjarðarveitur biðjast velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.