Fara í efni

40 ára afmæli Varmahlíðarskóla

24.05.2016
Boðskort á afmælishátíð Varmahlíðarskóla

Í tilefni af 40 ára afmæli Varmahlíðarskóla á núverandi skólaári ætla nemendur og starfsfólk skólans að gera sér glaðan dag og fagna þessum tímamótum. Það verður opið hús í skólanum fimmtudaginn 26. maí frá kl. 15:00 til 18:00. Kl. 16:30 er hátíðarsamkoma í íþróttamiðstöð og danssýning nemenda. Á opnu húsi verða verk nemenda sýnd og afrakstur þemadaga. Boðið verður uppá kaffi og meðlæti.

Allir eru boðnir velkomnir, gamlir nemendur, velunnarar skólans og aðrir.