| 05.12.2007 - - Fundur 22 - Umhverfis- og samgöngunefnd Umhverfis- og samgöngunefnd Skagafjarðar Fundur 22 – 5. desember 2007 Ár 2007, miðvikudaginn 5. desember kl 815 kom umhverfis- og samgöngunefnd saman til fundar í Ráðhúsinu við Skagfirðingabraut á Sauðárkróki Fundinn sátu: Þórdís Friðbjörnsdóttir, Jón Sigurðsson, Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir, Jón Örn Berndsen settur sviðsstjóri, sem ritaði fundargerð Þórdís setti fund og bauð velkomna fundarmenn – Dagskrá: Úrgangsmál 1. Úrgangsmál – gjaldskrár 2. Önnur mál. Afgreiðslur: 1. Vinnufundur, þar sem farið var yfir ýmis gögn sem nefndin hefur viðað að sér vegna breytinganna sem eru í vændum í úrgangsmálum sveitarfélagsins, s.s. lög og reglugerðir, samþykktir, kynningarefni o. fl. Formanni og sviðstjóra falið að leggja mótaðar tillögur að samþykktum og gjaldskrá fyrir á næsta fundi. 2. Önnur mál. Fundargerð upplesin og samþykkt og fundi slitið kl. 945 Jón Örn Berndsen ritari fundargerðar |
| Til baka |