| 14.12.2007 - - Fundur 23 - Umhverfis- og samgöngunefnd Umhverfis- og samgöngunefnd Skagafjarðar Fundur 23 – 14. desember 2007 Ár 2007, föstudaginn 14. desember kl 815 kom umhverfis- og samgöngunefnd saman til fundar í Ráðhúsinu við Skagfirðingabraut á Sauðárkróki Fundinn sátu: Þórdís Friðbjörnsdóttir, Jón Sigurðsson, Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir, Jón Örn Berndsen settur sviðsstjóri sem ritaði fundargerð, Ómar Kjartansson frá ÓK gámaþjónustu og Úlfar Sveinsson áheyrnarfulltrúi VG Dagskrá: Úrgangsmál 1. Úrgangsmál – Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Skagafirði. 2. Fjárhagsáætlun 2008 3. Önnur mál. Þórdís setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Sérstaklega Úlfar Sveinsson áheyrnarfulltrúa VG Afgreiðslur: 1. Farið yfir samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Skagafirði. Samþykktin samþykkt og ákveðið að óska umsagnar Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra um samþykktina. Að fenginni umsögn Heilbrigðiseftirlits verður samþykktin aftur tekin fyrir í nefndinni. 2. Fjárhagsáætlun 2008. Farið yfir þær breytingar sem Byggðarráð hefur gert á fjárhagsáætlunum málaflokka 08 Hreinlætismál og 10 Umhverfis- og samgöngumál. Umhverfis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemdir við þessar breytingar. 3. Önnur mál. Engin. Fundargerð upplesin og samþykkt og fundi slitið kl. 1006 Jón Örn Berndsen ritari fundargerðar |
| Til baka |