| 13.12.2007 - - Fundur 413 - Byggðarráð Byggðarráð Skagafjarðar Fundur 413 - 13. desember 2007 Ár 2007, fimmtudaginn 13. desember kl. 10:00, kom Byggðarráð Skagafjarðar saman til fundar í Ráðhúsinu á Sauðárkróki. Fundinn sátu: Páll Dagbjartsson, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Bjarni Jónsson áheyrnarfulltrúi og Gunnar Bragi Sveinsson. Auk þess sat fundinn Guðmundur Guðlaugsson sveitarstjóri Fundarritari var Margeir Friðriksson
Byggðarráð ítrekar vilja til þess að Landsmót hestamanna 2010 verði haldið í Skagafirði.
Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu skipulags- og bygginganefndar.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir að þetta verkefni verði sett inn á verkefnaáætlun ársins 2009 og að undirbúningur verði hafinn á árinu 2008.
Byggðarráð samþykkir tillögur félags- og tómstundanefndar um gjaldskrár og grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar. Erindi landbúnaðarnefndar afgreitt með næsta dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætluninni eins og hún liggur fyrir til síðari umræðu í sveitarstjórn. Byggðarráð samþykkir eftirfarandi álagningarforsendur fyrir fjárhagsáætlun 2008. Breytingar á fasteignaskatti ársins 2008: A flokkur, álagningarhlutfall 0,45%, B-flokkur 1,32%, C-flokkur 1,65%. Lóðarleiga íbúðalóða 1%, lóðarleiga atvinnulóða 2%. Leiga ræktunarlands 1,00 kr./m2 Gjalddagar fasteignagjalda verði átta á tímabilinu febrúar til og með september 2008. Byggðarráð samþykkir að gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpurðun í Sveitarfélaginu Skagafirði verði svo á árinu 2008: 1. grein: Sorphirðugjald á ílát, íbúðarhúsnæði kr. 10.000 Sorpeyðingargjald á ílát - íbúðarhúsnæði kr. 6.000 Sorphirðugjald á ílát, sumarhús kr. 6.000 2. grein: Sorpurðunargjald liður I: Flokkur 1, kr. 9.000 Flokkur 2, kr. 50.000 Flokkur 3, kr. 150.000 Flokkur 4, kr. 290.000 Flokkur 5, kr. 575.000 Sorpurðunargjald liður II: Bújarðir með atvinnustarfsemi, kr. 10.000 Þjónustubýli, kr. 6.000 Sumarbústaðir, kr. 4.000 Byggðarráð samþykkir að gjaldskrá fyrir fráveitugjald og tæmingu rotþróa í Sveitarfélaginu Skagafirði verði svo á árinu 2008: 2. grein. Fráveitugjald verður 0,275% af álagningarstofni. 3. grein. Árlegt gjald fyrir tæmingu rotþróa: 0-2000 ltr. árgjald 4.300 kr. 2001-4000 ltr. árgjald 5.000 kr. 4001-6000 ltr. árgjald 6.000 kr. stærri en 6000 ltr. kr. 3.000 pr. m3. Aukatæming kr. 4.300.
Fleira ekki fyrir tekið, fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12:20 Margeir Friðriksson, ritari fundargerðar | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Til baka | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||