| 05.12.2007 - - Fundur 412 - Byggðarráð Byggðarráð Skagafjarðar Fundur 412 - 5. desember 2007 Ár 2007, miðvikudaginn 5. desember kl. 09:00, kom Byggðarráð Skagafjarðar saman til fundar í Ráðhúsinu á Sauðárkróki. Fundinn sátu: Páll Dagbjartsson, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Bjarni Jónsson áheyrnarfulltrúi og Gunnar Bragi Sveinsson. Auk þess sat fundinn Guðmundur Guðlaugsson sveitarstjóri Fundarritari var Margeir Friðriksson Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Málin rædd almennt um verkefni fyrirtækisins nú og til framtíðar. Einnig rætt um að skoða möguleika á að Skagafjarðarveitur ehf yfirtaki fráveitu sveitarfélagsins.
Byggðarráð ályktar eftirfarandi: Fyrir síðustu alþingiskosningar töluðu forsvarsmenn og frambjóðendur allra flokka um mikilvægi þess að breyta vinnulagi óbyggðanefndar og fjármálaráðuneytis við kröfugerð varðandi þjóðlendur. Byggðarráð telur afar mikilvægt að staðið verði við gefin fyrirheit og vinnulagið endurskoðað. Byggðarráð samþykkir að hafa forystu um að gæta hagsmuna sveitarfélagsins og íbúa þess varðandi hugsanlegar kröfur í þjóðlendur og felur sveitarstjóra að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Fleira ekki fyrir tekið, fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 11:05 Margeir Friðriksson, ritari fundargerðar | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Til baka | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||