| 18.09.2007 - - Fundur 211 - Sveitarstjórn Sveitarstjórn Skagafjarðar Fundur 211 - 18. september 2007 Ár 2007, þriðjudaginn 18. september kl. 16:00, kom Sveitarstjórn Skagafjarðar saman til fundar í Safnahúsi við Faxatorg á Sauðárkróki. Mætt voru: Gunnar Bragi Sveinsson, Þórdís Friðbjörnsdóttir, Einar E. Einarsson, Sigurður Árnason, Páll Dagbjartsson, Sigríður Björnsdóttir, Gísli Sigurðsson, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir og Bjarni Jónsson. Auk þess sat fundinn Guðmundur Guðlaugsson, sveitarstjóri. Fundarritari var Engilráð Margrét Sigurðardóttir. Forseti setti fund og lýsti dagskrá.
Enginn kvaddi sér hljóðs. Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. Páll Dagbjartsson óskar bókað að hann taki ekki þátt í afgreiðslu 4. liðar.
Til máls tók Bjarni Jónsson og leggur fram bókun varðandi 3. lið fundargerðarinnar: „Ég lýsi ánægju með skjót viðbrögð við ábendingum mínum á síðasta sveitarstjórnarfundi þess efnis að hleypa bæri eldri borgurum aftur inn í félagsheimilið Ljósheima með starfsemi sína þar sem önnur aðstaða væri ekki enn til reiðu. Eldri borgarar höfðu verið á hrakhólum eftir að þeim var tjáð í sumar að þeir fengju ekki frekari afnot af Ljósheimum.“ Bjarni Jónsson VG Þórdís Friðbjörnsdóttir kvaddi sér hljóðs, þá Bjarni Jónsson, fleiri ekki. Liður 3, Samningur milli Félagsheimilisins Ljósheima og Félagsþjónustu Skagafjarðar, borinn upp sérstaklega og samþykktur samhljóða. Fundargerðin að öðru leyti borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Enginn kvaddi sér hljóðs. Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Til máls tóku Páll Dagbjartsson, Þórdís Friðbjörnsdóttir. Síðan Bjarni Jónsson, sem lagði fram bókun varðandi 8. lið: „Á síðasta fundi sveitarstjórnar var samþykktur samningur við Árskóla um rekstur Íþróttahússins á Sauðárkróki á skólatíma. Góð markmið en heildstæðar útfærslur skorti. Jafnframt kom fram að UMF Tindastóll myndi að öllum líkindum taka að sér rekstur íþróttahússins frá kl. 16,00 virka daga og um helgar. Annað hefur nú komið á daginn. Því miður er að koma betur og betur í ljós hvað málið er í heild illa undirbúið. Umsjón og gæsla í íþróttahúsinu utan skólatíma er í ólestri þannig að aukin slysahætta getur hlotist af, ásamt því að gæta þarf betur að þeim verðmætum sem eru í húsinu. Þá er margt óljóst um starfsmannahald og hvað margvíslegar breytingar á rekstrarþáttum, ekki síst vinnufyrirkomulagi og launakostnaði, munu hafa í för með sér. Kallað var eftir kostnaðarmati vegna fyrirhugaðra breytinga en meirihluti sveitarstjórnar hafnaði því að slíkir útreikningar færu fram og kaus fremur að renna blint í sjóinn. Ótækt er að óvissa ríki um rekstur íþróttahússins og að starfsemi þar sé í uppnámi. Nú þegar þarf að grípa til aðgerða til að koma rekstri og umsjón íþróttahússins í viðunandi horf.“ Bjarni Jónsson VG Þórdís Friðbjörnsdóttir kvaddi sér hljóðs, þá Gunnar Bragi Sveinsson og lagði fram bókun frá fulltrúum meirihlutans: „Málflutningur sveitarstjórnarfulltrúa VG er til skammar. Vitnað er í ónafngreinda heimildamenn, slegið um sig með fullyrðingum um að notendur íþróttahússins séu í hættu, að starfsemin sé í uppnámi os.frv. Ekkert af þessu er rétt. Að okkar mati er vegið að starfsmönnum sveitarfélagins með ósanngjörnum og órökstuddum hætti með slíkum málflutningi.“ Fulltrúar Framsóknarflokks og Samfylkingar. Þá talaði Bjarni Jónsson og lagði fram bókun: „Viðbrögð meirihlutans gera ekki annað en að undirstrika það klúður sem rekstur og starfsemi íþróttahússins eru komin í af þeirra völdum. Aumlegt er af hálfu fulltrúa meirihlutans að skýla sér á bak við starfsmenn sveitarfélagsins þegar þeirra eigin athafnir eða athafnaleysi er gagnrýnt.“ Bjarni Jónsson VG Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs. Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Enginn kvaddi sér hljóðs. Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Leggur hún jafnframt til að 4. lið, er varðar erindi frá Héraðsbókasafni og Héraðsskjalasafni, verði vísað til Byggðarráðs. Til máls tóku Páll Dagbjartsson, Bjarni Jónsson, Sigurður Árnason, Gunnar Bragi Sveinsson, Páll Dagbjartsson. Þá Bjarni Jónsson og óskar bókað: „Vegna efasemda um vinnubrögð nefndarinnar varðandi málefni Ljósheima og við uppsögn húsvarðar sit ég hjá við afgreiðslu 1. liðar.“ Því næst talaði Sigurður Árnason, fleiri ekki. Tillaga um að vísa 4. lið til byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. Fundargerðin að öðru leyti borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. Svo sem áður kom fram sat Bjarni Jónsson hjá við afgr. 1. liðar.
Til máls tók Bjarni Jónsson, fleiri ekki. Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Til máls tóku Páll Dagbjartsson, Bjarni Jónsson, fleiri ekki. Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Til máls tók Bjarni Jónsson og lagði fram bókun: „Þar sem fulltrúar VG eru útilokaðir frá starfi nefndarinnar sit ég hjá við afgreiðslu fundargerða Byggingarnefndar menningarhússins Miðgarðs.“ Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs. Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. Svo sem áður er bókað situr Bjarni Jónsson hjá við afgreiðsluna.
Enginn kvaddi sér hljóðs. Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. Svo sem áður er bókað situr Bjarni Jónsson hjá við afgreiðsluna.
Var samþykkt samhljóða að verða við erindinu.
Guðrún Helgadóttir færist upp og verður 1. varamaður S-lista í Sveitarstjórn. Þessir aðilar voru tilnefndir í nefndir, ráð og stjórnir: Byggðaráð Guðrún Helgadóttir, varam. Félags- og tómstundanefnd Sveinn Allan Morthens, aðalm. Landsþing Samb.ísl. sveitarfél. Guðrún Helgadóttir, varam. Ársþing SSNV Guðrún Helgadóttir, varam. Aðal- og hluthafafundir Skagafjarðarveitna: Guðrún Helgadóttir, varam. Verkefnisstjórn sáttmála til sóknar í skólum í Skagaf. Guðrún Helgadóttir, varam. Fleiri tilnefningar bárust ekki og skoðast þessir aðilar því rétt kjörnir.
Fleira ekki fyrir tekið, fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17,48. Engilráð Margrét Sigurðardóttir, ritari fundargerðar | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Til baka | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||