| 11.03.2008 - - Fundur 224 - Sveitarstjórn 224. fundur sveitarstjórnar haldinn í Safnahúsinu við Faxatorg, þriðjudaginn 11. mars 2008 og hófst hann kl. 16:00 Fundinn sátu: Gunnar Bragi Sveinsson, Þórdís Friðbjörnsdóttir, Sigurður Árnason, Einar Eðvald Einarsson, Páll Dagbjartsson, Sigríður Björnsdóttir, Gísli Sigurðsson, Bjarni Jónsson, Guðrún Helgadóttir, Guðmundur Guðlaugsson, sveitarstjóri. Fundargerð ritaði: Engilráð Margrét Sigurðardóttir Í fjarveru forseta Grétu Sjafnar Guðmundsdóttur, setti 1. varaforseti Gunnar Bragi Sveinsson fund og stýrði honum. Forseti leitaði samþykkis fundarins um að taka til afgreiðslu fundargerð fræðslunefndar frá 6. mars, en hún barst fulltrúum ekki fyrr en í morgun. Var það samþykkt. Dagskrá: 1. 0802017F - Byggðarráð Skagafjarðar - 424 Gunnar Bragi Sveinsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs. Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. 2. 0803002F - Byggðarráð Skagafjarðar - 425 Gunnar Bragi Sveinsson kynnti fundargerð. Til máls tók Þórdís Friðbjörnsdóttir. Þá Bjarni Jónsson, sem lagði fram bókun: „ Undirritaður ítrekar stuðning VG við framkomna þingsályktunartillögu um verndun Jökulsánna í Skagafirði ásamt náttúru þeirra og harmar andstöðu meirihluta Samfylkingar og Framsóknar við slíkar hugmyndir, sem aukinheldur lýsa því yfir í bókun á byggðarráðfundi að unnið sé að hönnun virkjana í Jökulsánum í Skagafirði. Af bókun þeirra má helst skilja að helsti ávinningurinn af því að fresta skipulagi á svæðinu sé að skapa ákveðnum aðilum sterkari stöðu í baráttu um virkjanarétt í Jökulsánum. Það þarf því enginn að fara í grafgötur um afstöðu fulltrúa þessara flokka. Hug Framsóknar til íslenskrar náttúru þekkja allir en afstaða Samfylkingarinnar veldur miklum vonbrigðum. Í riti Samfylkingarinnar „Fagra Ísland“ stendur í 1. grein að Samfylkingin vilji: „Tryggja rétt náttúrunnar í skipulagi og við landnýtingu ... að áætlunin verði lögð til grundvallar við gerð hugsanlegs landskipulags og aðalskipulags sveitarfélaga.“ Þá segir í 2. grein að það eigi að: „Tryggja nú þegar verndun ákveðinna svæða... Tryggja friðun Skjálfandafljóts, Jökulánna í Skagafirði, Torfajökulssvæðisins, Kerlingarfjalla, Brennisteinsfjalla og Grændals.“ „Hvurnig er með efndirnar sem sumir lofuðu sumum“ sungu Spilverk þjóðanna á sínum tíma í lagi sínu Græna byltingin. Þau orð eiga sannarlega við nú.“ Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs. Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. Bjarni Jónsson óskar bókað að hann greiði atkvæði gegn 14. lið, sbr. bókun hans hér að framan. 3. 0802018F - Félags- og tómstundanefnd - 121 Sigríður Björnsdóttir kynnti fundargerð. Til máls tóku Páll Dagbjartsson, Bjarni Jónsson, Guðmundur Guðlaugsson, Sigríður Björnsdóttir, fleiri ekki. Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. 4. 0803007F - Fræðslunefnd - 35 Sigurður Árnason kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs. Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. 5. 0803010F - Fræðslunefnd - 36 Sigurður Árnason kynnti fundargerð. Til máls tóku Bjarni Jónsson, Sigurður Árnason, fleiri ekki. Liður 9, Reglugerð fyrir Tónlistarskóla Skagafjarðar, borinn undir atkvæði og samþ. samhljóða. Fundargerð að öðru leyti borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. 6. 0803011F - Skipulags- og byggingarnefnd – 141 Einar E. Einarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs. Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. 7. 0803009F - Umhverfis- og samgöngunefnd - 26 Þórdís Friðbjörnsdóttir kynnti fundargerð. Til máls tóku Páll Dagbjartsson, Guðrún Helgadóttir, Bjarni Jónsson, fleiri ekki. Liður 1, Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Skagafirði, borinn undir atkvæði og samþ. samhljóða. Fundargerð að öðru leyti borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. 8. 0803012F - Byggingarnefnd menningarhússins Miðgarðs – 10 Gunnar Bragi Sveinsson kynnti fundargerð. Til máls tók Bjarni Jónsson, fleiri ekki. Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. Bjarni Jónsson óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðslu fundargerðarinnar þar sem VG á ekki aðild að byggingarnefndinni eða ber ábyrgð á störfum hennar. 9. 0802078 - Þriggja ára áætlun 2009-2011 – síðari umræða Forseti Gunnar Bragi Sveinsson, lýsti því að engar breytingar hafi verið gerðar á þriggja ára áætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar og stofnana þess 2009-2011 á milli umræðna, utan þess að við bættist listi yfir helstu verkefni Skagafjarðaveitna ehf, sem fyrirhuguð eru á þessu tímabili. Páll Dagbjartsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram bókun frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks: „Þriggja ára fjárhagsáætlun sveitarfélagsins Skagafjarðar, sem hér er til umræðu og afgreiðslu, er unnin af fulltrúum meirihluta Framsóknarflokks og Samfylkingar án aðkomu minnihlutans. – Margt er óljóst í áætluninni og við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins drögum í efa að markmið þau sem sett eru fram gangi eftir, m.a. vegna þess hve margt er óljóst um efnahagslegar forsendur sem gefnar eru. Jákvætt er fyrir íbúa sveitarfélagsins að sjá í áætluninni forgangsröðun meirihlutans hvað varðar viðhald eigna og nýframkvæmdir næstu þrjú ár. Um forgangsröðun slíkra verkefna má alltaf deila. Við hörmum að nýbygging við Árskóla sé ekki framar á forgangslistanum, en það verkefni er afar brýnt, m.a. vegna ófullnægjandi aðgengis fatlaðra. Við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitjum hjá við afgreiðslu þessarar þriggja ára áætlunar.“ Bjarni Jónsson tók til máls og lagði fram bókun: „Margt er óljóst í áætlun meirihlutans. Athygli vekur að greinargerð skortir með áætluninni og þar með framtíðarsýn meirihlutans fyrir sveitarfélagið. Í þriggja ára áætlun meirihlutans er ekki tekið á útgjaldavanda sveitarfélagsins heldur veðjað á áframhaldandi há framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að brúa bilið. Meirihlutinn er því ráðalaus í þessum efnum. Á meðan útgjöld munu halda áfram að bólgna út í suma málaflokka sitja aðrir eftir sem jafnvel fremur þyrftu að njóta forgangs. Ekki verður sé að meirihlutinn ætli að standa við samþykktir sveitarstjórnar um að gera leikskólana gjaldfrjálsa á kjörtímabilinu. Þá vekur athygli að gert er ráð fyrir leigugreiðslum til Kaupfélags Skagfirðinga vegna leikskóla en endanlegar ákvarðanir um hvernig staðið verður að byggingu og rekstri nýs leikskóla liggja ekki fyrir. Spurn er hvort til standi að fara með Árskóla með sama hætti. Á sama tíma og stefnt er að því að fá hingað unglingalandsmót árið 2010 er ekki gert ráð fyrir nauðsynlegum framkvæmdum við sundlaug á Sauðárkróki eða framtíðartjaldsvæði. Fleira er athugavert í áætlun þessari.“ Til máls tók Gunnar Bragi Sveinsson, með leyfi varaforseta, þá Sigurður Árnason, og lagði fram eftirfarandi bókun meirihlutans: „Sú þriggja ára áætlun sem hér er lögð fram ber vott um framsýni og uppbyggingu í Skagafirði. Í fyrsta sinn er áætlunin lögð fram með stefnumarkandi og ítarlegri framkvæmda- og viðhaldsáætlun til þriggja ára. Áætlunin gerir ráð fyrir bættum rekstri sveitarsjóðs og stofnana hans, sem gerir mögulegt að ráðast í þær framkvæmdir sem nauðsynlegar eru. Í áætluninni kemur fram að tæpar 800 milljónir eru ætlaðar til framkvæmda á tímabilinu og tæpar 180 mkr. til viðhaldsverkefna. Áætlunin er stefnumörkun sveitarstjórnar til næstu þriggja ára og sýnir vilja til að hraða nauðsynlegum framkvæmdum og viðhaldsverkefnum. Hafa ber í huga að ný verkefni geta komið til á gildistíma áætlunarinnar og önnur breyst Þökkum við sveitarstjóra og starfsfólki sveitarfélagsins fyrir góða vinnu við gerð áætlunarinnar.“ Fulltrúar Framsóknarflokks og Samfylkingar. Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs. Þriggja ára áætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar og stofnana þess 2009-2011 borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna óska bókað að þeir sitji hjá við afgreiðsluna. 10. 0803035 - Stjórnarfundargerð Samb. ísl. sveitarfél. - 751 Fundargerð lögð fram til kynningar. Fleira ekki gert. Fundargerð upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17:20. |
| Til baka |